Gagnrýnir „bloggsíður sem vilja láta líta á sig sem fjölmiðil“

Margrét Friðriks­dóttir, ritstjóri Fréttin.is, hefur nú fengið miðilinn skráðan sem fjölmiðil hjá Fjölmiðla­nefnd. Sigríður Dögg Auðuns­dóttir, formaður Blaðamanna­félags Íslands, segir miðilinn vera bloggsíðu undir áróður. Hún skorar á almenning að hafa augun opin gagnvart því að fréttir séu unnar samkvæmt viðurkenndum aðferðum blaða­mennskunnar.

Ábyrgðarhluti að setja fram efni á internetinu
Ábyrgð­ar­hluti að setja fram efni á inter­net­inu Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, segir ábyrgð fylgja því að setja fram efni á inter­netið og undir hvaða skil­grein­ingu það sé gert. Mynd: Press.is

Margrét Friðriks­dóttir, ritstjóri miðilsins Fréttin.is, hefur fengið miðilinn skráðan sem fjölmiðil hjá Fjölmiðla­nefnd.

Í samtali við Stundina segir hún ástæðuna fyrir því að hafa stofnað miðilinn vera að aðrir fjöl­miðlar stundi „markvissa þöggun á ákveðnum fréttum“.

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir, formaður Blaðamanna­félags Íslands, segir miðilinn vera „bloggsíðu sem vill láta líta á sig sem fjölmiðil“ sem setji fréttir fram „í ákveðnum tilgangi“ og starfi því ekki samkvæmt grundvallar­reglum blaða­mennsku.

Vantaði upp á skráningu á eignarhaldi

Margrét sóttist eftir því að fá miðilinn skráðan hjá fjölmiðla­nefnd í nóvember­mánuði en ferlið strandaði á því að geta skráð raun­verulegt eignar­hald hans. 

„Við erum að skrá þetta sem einka­hlutafélag bara núna í dag,“ segir Margrét. Til að byrja með segist hún ætla að vera ein skráð sem raun­verulegur eigandi félagsins „en síðan mun það kannski breytast með tímanum,“ segir hún. Þá segist hún hafa verið að ganga út af …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hmm. Ég hef nú ekki séð betur en að Stundin sé einmitt fjölmiðill sem flytur ávallt mjög einhliða fréttir. Mætti vel kalla bloggsíðu þótt hún þiggi framlög úr ríkissjóði.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Margréti Friðriksdóttir á BESSASTAÐI !!!!! :-) :-) :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár