Trump í opinberum deilum við Kína, Venesúela og Kanada

Bandaríkja­forseti hefur farið mikinn á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna í New York.

Donald Trump Bandaríkja­forseti gagnrýndi Kínverja, stjórn­völd í Venesúela og forsætis­ráðherra Kanada, harðlega á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna.

Hann sagði Kínverja vera að skipta sér af kosningunum í Banda­ríkjunum, og þeir væru að reyna að koma í veg fyrir að hann yrði kosinn aftur. „Það mun ekki takast. Við erum að vinna,“ sagði Trump, en Kínverjar svöruðu því til að þetta væri þvættingur í Trump, og engar sannanir væru til fyrir þessum alhæfingum forsetans.

Í gær beindustu spjótin síðan að stjórn­völdum í Veneseúela en Trump virtist í ræðu sinni ekki útiloka að Banda­ríkin myndu beita hervaldi í Venesúela. Trump sagði óstjórn ríkja í landinu og Banda­ríkin vildu hjálpa til við að koma á röð og reglu. Nicolas Maduro, hinn umdeildi forseti Venesúela, sagðist vilja eiga fund með Trump til að ræða um stöðuna í Venesúela og reyna að liðka fyrir betri samskiptum milli ríkjanna. Það hefur enn ekki tekist, en ástand efnahags­mála er í molum í þessu annars auðlinda­ríka ríki í Suður-Ameríku. Verðbólgu mælist í þúsundum prósenta og skelfilegt ástand er víða í landinu vegna lyfja­skorts.

Trump beindi einnig spjótunum að Kanada og neitaði meðal annars að funda með Justin Trudeau, forsætis­ráðherra Kanada. Þessar grann­þjóðir hafa átt í stirðum pólitískum samskiptum upp á síðkastið en Trump vill beita tollum í meira mæli í viðskiptum við bæði Kanada og Mexíkó, og segir að með því takist betur að vernda bandaríska hagsmuni.

Þrátt fyrir harða gagnrýni gagnvart þessum fyrr­nefndu þjóðum, þá átti hann fundi með Theresu May, forsætis­ráðherra Bretlands, Benjamin Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, og Abe forsætis­ráðherra Japans. Eftir fundina fagnaði hann góðum samskiptum við þessa mikilvægu vini Banda­ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár