Sonur minn greindist með bráðahvítblæði

Yngvi Ómar Sigrúnarson segir að það hafi breytt sýn sinni á lífið að takast á við veikindi sonarins.

Breytt sýn
Breytt sýn Yngvi Ómar segir það að vera næstum því búinn að missa eina barnið sitt hafi sett lífið í annað sam­hengi.

„Sonur minn greindist með bráða­hvítblæði sumarið 2017, þá 16 ára gamall. Þetta var rosaleg barátta af því að það áttu sér stað mistök í ferlinu. Settur var í hann lyfja­brunnur, eins og krabbameins­sjúklingar fá, og lyfja­gjöfin var alltaf að stoppa í fyrstu meðferðinni og tók því átta tíma en ekki fjóra. Ég fór til læknanna eftir þetta og spurði hvort það væri ekki eitthvað að þessum lyfja­brunni en þeir sögðu svo ekki vera. 

Hann fór í aðra stutta lyfjagjöf nokkrum dögum seinna og það sama gerðist. Þeir prófuðu meðal annars stærri nálar, en þetta var alltaf að stoppa. 

Sonur minn fór síðan í aðal­krabbameins­lyfja­gjöfina og þetta gerðist þá líka og í stað þess að fá lyfin jafnt yfir 23 tíma þá fékk hann stærsta skammtinn í lokin.

Í kjölfarið fékk hann gríðar­lega eitrun og lá fárveikur í þrjár til fjórar vikur. Þá var farið með hann í …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár