Unnið að uppstokkun stofnana ráðuneytis Guðlaugs Þórs

Tæplega helmingur starfs­fólks 13 stofnana sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytið telur mikil tækifæri felast í sameiningum stofnana. Unnið er að „einföldun á stofnana­fyrir­komulagi“.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því í sumar, er Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, kynnti forsendur og markmið verkefnis við að greina „umbóta­tækifæri og áskoranir“ sem felast í núverandi stofnana­kerfi ráðuneytisins, hefur verið unnið að einföldun skipulags þessara stofnana. Þær eru þrettán talsins og hjá þeim starfa um 600 manns á 40 starfs­stöðvum víða um land. Flest störfin eða 61 prósent eru á höfuð­borgar­svæðinu.

Markmið að ná fram hagræðingu

Guðlaugur Þór kynnti stöðu þessarar vinnu á ríkis­stjórnar­fundi í síðustu viku. Í upplýsingum sem hann lagði þar fram og Kjarninn fékk afhentar, kom fram að markmið verk­efnisins væri að gera stofnanir betur í stakk búnar til að mæta „umfangs­miklum faglegum og rekstrar­legum áskorunum sem við blasa, efla samstarf stofnana og ráðuneytis, auka skilvirkni, þjónustu og ná fram hagræðingu“.

Í verk­efninu telur ráðherrann einnig felast sóknar­færi hvað varðar fjölgun starfa á lands­byggðinni, fjölgun á störfum óháð stað­setningu og uppbyggingu eftirsóknar­verðra vinnu­staða fyrir öflugt fagfólk, líkt og það er orðað í samantekt um stöðu vinnunnar.

Þingvallafundur með forstöðumönnum

Í lok júní átti Guðlaugur Þór fund á Þing­völlum með forstöðu­mönnum allra stofnana sem heyra undir ráðuneyti hans. Á þeim fundi voru meðal annars kynntar áherslur um að nýta þekkingu, innviði og gögn sem fyrir eru og að auka samþættingu stefnu­mótunar og áætlana­gerðar.

Greiningar­vinna byggir á heild­stæðri nálgun mála­flokka, líkt og það er orðað, og verkefna sem í sumum tilfellum ná út fyrir skilgreind viðfangs­efni stofnana og ráðuneytisins. Með sama hætti er horft til þess hvort núverandi verkefnum væri betur fyrir komið með öðrum hætti, s.s. „þar sem tækifæri gætu legið til samþættingar eða flutnings verkefna á milli ráðuneyta“. Meðal annars vegna þessa er áhersla lögð á mikilvægi náins samstarfs við önnur ráðuneyti, segir í þeim gögnum sem ráðherrann kynnti fyrir ríkis­stjórn.

Minnihluti sér mikil tækifæri

Forstöðu­menn allra stofnana hafa skilað inn greinar­gerðum og hefur Guðlaugur Þór fundað með starfs­mönnum þeirra allra. Viðhorfs­könnun var gerð nú í ágúst á meðal starfs­fólksins og var þátttaka um 74 prósent. Í könnuninni kom m.a. fram að innan við helmingur eða 48 prósent telja mikil eða mjög mikil tækifæri felast í sameiningum stofnana. 63 prósent telja hins vegar mikil eða mjög mikil tækifæri liggja í að samþætta verkefni og auka samvinnu.

Einnig var spurt um viðhorf til fjarvinnu og voru 82 prósent starfs­fólks jákvæð gagnvart því að sinna starfinu með þeim hætti að hluta eða öllu leyti.

Geta nýrra stofnana

„Í grunninn er horft á getu nýrra stofnana til að mæta allra stærstu áskorunum sem bíða á þessu sviði en auk þess var sérstak­lega horft til efnis­atriða sem hafa, með einum eða öðrum hætti, verið á borði margra stofnana og verkefna sem hafa verið með mikla skörun eða tengingar á milli stofnana,“ segir í gögnum þeim sem lögð voru fyrir ríkis­stjórnina. Er þar örugglega verið að vísa til loftslags­mála. „Með nýrri nálgun er stefnt að því að auka skilvirkni og draga úr sóun sem hlýst af tvítekningu, skorti á samstarfi og samskiptum.“

Niðurstaða í lok árs

Verkefnis­áætlun gerir ráð fyrir að á næstu vikum fari fram frekari gagna­öflun og greining samhliða því sem fundað verði með stjórnum, nefndum, öðrum ráðuneytum og hagaðilum. Á þessum fundum verður verkefnið kynnt auk þess sem sérstök áhersla verður á umræður um mögulegan flutning verkefna til og frá ráðuneytinu og stofnunum þess. Gert er ráð fyrir að í lok þessa árs liggi fyrir hver niður­staðan verður og í framhaldi af því mun hefjast vinna við innleiðingu breytinganna.

Sameining stofnana kom til tals á fundi þingmanna Vinstri grænna í Borgarnesi nýverið. Tilefni fundarins var umræða sem vaknað hefur um vind­orkuver en að mati á slíkum framkvæmdum, sem hafa áhrif á umhverfi, samfélög og fleiri þætti, koma einmitt margar stofnanir s.s. Skipulags­stofnun, Náttúru­fræði­stofnun Íslands, Umhverfis­stofnun og Orku­stofnun.

„Ruslakistustofnunin“

Einn gestur fundarins sagði að hið nýja innviða­ráðuneyti, sem Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar­flokksins fer fyrir, vera að „gleypa alls konar stofnanir sem eru ætlaðar til þess að hindra framgang svona mála“.

Hann nefndi Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun, sem væri „ruslakistu­stofnun“ og óttaðist að næsta skref yrði að sameina Skipulags­stofnun þeirri kistu í þeim tilgangi að lama það eftirlit og hlutverk sem hún hefur. Vinstri græn verði að sjá til þess að „freku kallarnir“ komist ekki upp með að losna við þær bremsur sem þó eru í mann­virkjagerð hér á landi og eru m.a. á hendi Skipulags- og Umhverfis­stofnunar.

Skipulagsmál voru færð frá umhverfis­ráðherra til innviða­ráðherra er ný ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur var kynnt seint á síðasta ári. Þar með færðist Skipulags­stofnun frá umhverfis­ráðuneytinu undir nýtt embætti innviða­ráðherra.

Orri Páll Jóhannsson, þing­flokks­formaður VG, minnti á Borgar­nesfundinum á að Skipulags­stofnun starfi á grund­velli laga. „Hún verður ekkert lögð niður eða henni breytt nema með laga­setningu“ og sagðist því ekki deila sömu áhyggjum og fundar­gesturinn. Hann hefði hvergi fengið það staðfest að til standi að sameina Skipulags­stofnun annarri stofnun „en ég hef alveg heyrt þetta, ég viðurkenni það“.

Bjarni Jónsson, þingmaður VG, var einnig á þessum fundi í Borgarnesi. „Ég skal alveg viðurkenna það að ég var ekkert ofboðs­lega skotinn í þessum breytingum, persónu­lega,“ sagði Bjarni og vísaði til stofnunar innviða­ráðuneytisins.

Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru: Íslenskar orku­rannsóknir (ÍSOR), Land­mælingar Íslands, Minja­stofnun, Náttúru­fræði­stofnun Íslands, Náttúru­rannsóknar­stöðin við Mývatn, Orku­stofnun, Stofnun Vilhjálms Stef­ánssonar, Umhverfis­stofnun, Úrskurðar­nefnd umhverfis- og auðlinda­mála, Úrvinnslu­sjóður, Vatna­jökuls­þjóðgarður, Veður­stofa Íslands, Þjóð­garðurinn á Þing­völlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár