Ketamín og áfengi

Rannsókn sýndi að litlir skammtar af ketamíni geta dregið úr löngun þeirra sem telja sig drekka of mikið, til að halda því áfram.

Drykkja áfengis er stór þáttur í félagslegri hegðun okkar á vestur­löndum. Þó að notkun þessa fíkni­efnis sé bæði lögleg og viðurkennd þá er áfengi í stórum og tíðum skömmtum alls ekki hollt.

Flestir vita að ofneysla áfengis er óholl, en margir upplifa vanmátt sinn gagnvart því þegar kemur að félags­legum viðburðum og drekka þess vegna meira eða oftar en þeir myndu mögulega kjósa. Það getur verið erfitt að sannfæra heilann um að breyta út af vananum.

Samkvæmt lítilli rannsókn sem birt var í Nature communications er hægt að sannfæra heilann um að gleðin þarf ekki að búa í ölglasinu, trixið er bara örlítil lyfjagjöf.

Í rann­sókninni voru þátt­takendur 90 karlar og konur sem töldu sig drekka helst til of mikið. Rann­sóknin gekk út á að búa til góða minningu tengda bjór­drykkju í eitt skipti á rannsóknar­stofunni og reyna síðan að bæla þá minningu. Rann­sakendur gengu út frá því að ástæða þess að fólkið taldi sig drekka of mikið var vegna gleði­minninganna sem heilinn tengdi áfengis­neysluna við.

Eftir fyrstu tilraun þar sem bjór­drykkja var tengd við gleði­minningar sneri hópurinn aftur á rannsóknar­stofuna og var þá skipt í þrennt. Einn hluti fékk smáskammt af ketamíni áður en reynt var að kalla fram gleði­minningar með mynd af áfengi. Einn hluti fékk sama skammt af ketamíni áður en reynt var að kalla fram gleði­minningar með mynd af appelsínu­safa og þriðji hluti hópsins fékk ekkert ketamín en reynt var að kalla fram gleði­minningar með mynd af áfengi.

Hópurinn var síðan beðinn um að meta löngun sína í áfengi viku eftir tilraunina. Þar kom í ljós að þeir sem fengu ketamín áður en þeir sáu áfengi voru ólíklegri til að langa í áfengi í saman­burði við hópinn sem ekki fékk ketamín. Reyndar voru áhrifin enn til staðar 9 mánuðum síðar þegar hópurinn var skoðaður á ný.

Hér er þó um að ræða mjög litla rannsókn þar sem þátt­takendur þurfa sjálfir að leggja mat á eigið ástand. Enginn af þátt­takendunum í rann­sókninni var með greindan alkóhólisma en að eigin sögn töldu þau sig neyta of mikil áfengis.

Ketamín er deyfandi lyf sem helst er notað sem róandi lyf eða við miklum sársauka. Nýjustu rann­sóknir benda til þess að lyfið geti einnig haft áhrif á þunglyndi.

Þó hér hafi sést marktækur munur milli þeirra sem fengu lyfið (ketamín) og þeirra sem ekki fengu lyf var hópurinn líka þannig samsettur að flestir sem tóku þátt höfðu löngun til að minnka drykkju.

Þessar niður­stöður sýna þess vegna kannski helst að mögulega er hægt að nota lyf eins og ketamín til að hjálpa til við að minnka drykkju. En ekki er víst að lyfið geri mikið gagn þegar áfengis­neyslan er komin á alvarlegt stig.

Fréttin birtist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár