Lífeyrissjóðirnir búnir að kaupa Innergex út úr HS Orku

Félag í eigu 14 íslenskra lífeyris­sjóða hefur keypt 53,9 prósent hlut í HS Orku á 37,3 milljarða króna. Það mun að öllum líkindum eignast allt hlutafé í HS Orku. Að minnsta kosti um stund.

Aðkomu Ross Beaty, sem verið hefur stjórnarformaður HS Orku undanfarin ár, að fyrirtækinu fer senn að ljúka.
Aðkomu Ross Beaty, sem verið hefur stjórn­ar­for­maður HS Orku und­an­farin ár, að fyr­ir­tæk­inu fer senn að ljúka. Mynd: skjáskot

Jarðvarmi slhf, félag í eigu 14 íslenska lífeyris­sjóð, hefur keypt hlut Innergex í HS Orku á 299,9 milljónir dali, eða 37,3 milljarða króna á núvirði. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Innergex til kanadísku kaup­hallarinnar í dag.

Innergex hefur þar með selt sænsku félagið Magma Sweden til Jarðvarma en Magma á 53,9 prósent hlut í félaginu. Með kaupunum mun Jarðvarmi verða eigandi allra hluta í HS Orku, eina íslenska orku­fyrirtækinu sem er í einkaeigu eftir að hafa gengið inn í sölu á hlut fjár­festingar­sjóðsins ORK fyrr á þessu ári.

Viðbúið er þó að Jarðvarmi selji hluta þess sem félagið hefur keypt til breska félagsins Ancala Partners, sem sérhæfir sig í innviða­fjár­festingum í Evrópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum lífeyris­sjóðum. Samkvæmt heimildum Kjarnans stendur til að ljúka þeirri vinnu fyrir lok maímánaðar og er talið líklegt að um helmingur hlutafjár í HS Orku verði áfram­seldur til Ancala.

Jarðvami hefur samt sem áður tögl og hagldir í þróun HS Orku að óbreyttu. Þegar félagið keypti sig upphaf­lega inn í fyrir­tækið þá tryggði það sé ríka minnihluta­vernd og formlega aðkomu að öllum meiriháttar ákvörðunum á vegum HS Orku. Það samkomulag felur því í sér neitunar­vald gagnvart öllum stórum ákvörðunum.

Því neitunar­valdi hefur Jarðvarmi beitt áður, þegar fjár­festingar­sjóðurinn Blackstone hugðist kaupa 30 prósent hlut HS Orku í Bláa lóninu á 95 milljónir evra, um 12,9 milljarða króna á núvirði, sumarið 2017. Sú ákvörðun var ekki vinsæl á meðal stjórn­enda meirihluta­eigenda HS Orku á þeim tíma.

Aðkomu Beaty fer að ljúka

Með sölunni á Magma Energy Sweden til Jarðvarma lýkur áratuga­langri, og um tíma afar umdeildri, aðkomu Kanada­mannsins Ross Beaty og fyrir­tækja sem hann hefur komið að að þessu þriðja stærsta orku­fyrirtæki landsins.

Beaty, sem hefur verið stjórnar­formaður HS Orku árum saman, leiddi uppkaup sænska skúffu­fyrir­tækisins Magma Energy Sweden á hlutum í HS Orku á árunum 2009 og 2010. Þrátt fyrir mikinn pólitískan mótþróa, og umræður um hvort ríkið gæti gengið inn í kaupin eða komið í veg fyrir þau á annan hátt, þá náði hann að kaupa alls 98,53 prósent hlut í orku­fyrirtækinu á alls um 33 milljarða króna.

Miðað við verð­miðann sem er á sölunni til Jarðvarma þá er heildar­virði HS Orku nú um 69 milljarðar króna. Fyrir­tækið hefur því reynst ágætis fjár­festing fyrir þá sem keyptu það á sínum tíma.

Fyrirtæki Beaty fór síðan í gegnum sameiningar og endaði undir hatti Innergex, sem gekk frá sölunni á hlut sínum í HS Orku í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár