Lífeyrissjóðirnir í lykilstöðu í HS Orku og Reykjanesbær fær milljarða

Viðbúið er að Reykja­nes­bær fái á fjórða millj­arð króna í sinn hlut vegna sölu á hlut fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK í HS Orku. Sam­lags­fé­lagið Jarð­varmi, í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, verður með tögl og hagldir í HS Orku.

Í ágúst 2012 seldi Reykja­nes­bær skulda­bréf sem sveit­ar­fé­lagið eign­að­ist við sölu á hlut þess í HS Orku til Geysis Green Energy. Kaup­and­inn var Fag­fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn ORK sem rek­inn var af Virðingu, sem síðar gekk í gegnum nokkrar sam­ein­ingar og er nú hluti af Kviku banka. Sjóð­ur­inn var fjár­magn­aður af líf­eyr­is­sjóðum og fag­fjár­festum.

Í frétt á vef Reykja­nes­bæjar á þessum tíma var sagt að sölu­verðið væri 6,3 millj­arðar króna. Það átti að skipt­ast þannig að ORK greiddi strax 3,5 millj­arða króna í pen­ingum og um 500 millj­ónir króna í mark­aðs­skulda­bréf­um. Auk þess kom fram í sam­komu­lagi milli kaup­anda og selj­anda að loka­greiðsla ætti að fara fram í októ­ber 2017, þegar skulda­bréfið væri á gjald­daga. Sú loka­greiðsla var bundin ýmsu, meðal ann­ars þróun álverðs, og talan 6,3 millj­arðar króna því fjarri því meit­luð í stein. Í lok árs 2014 var skulda­bréfið til að mynda metið á um 5,8 millj­arða króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi ORK.

Tilboð upp á tæpa 5,4 milljarða króna

Í nóv­em­ber 2015 bauðst Alterra Power, sem áður hafði heitið Magma Energy sem var útgef­andi skulda­bréfs­ins, til að kaupa það til baka með afföllum, eða á 5.350 millj­ónir króna.

Tilboðið var langt undir fram­reikn­uðu virði skulda­bréfs­ins í árs­reikn­ingi Reykja­nes­bæjar, sem var 6,7 til 7,7 millj­arðar króna.

Þótt ORK ætti skulda­bréfið þá þurfti sjóð­ur­inn að óska eftir afstöðu Reykja­nes­bæjar til til­boðs­ins áður en því er ­tek­ið. Af söl­unni varð á end­anum ekki. Sem betur fer fyrir Reykja­nesbæ.

Þegar komið var að gjald­daga skulda­bréfs­ins, í októ­ber 2017, lá fyrir að útgef­and­inn vildi frekar láta veðið sem sett var fyrir því. Gengið var að því eftir það átti fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn ORK 12,7 pró­sent í HS Orku.

Verk­efnið virk­aði þannig að eig­endur ORK voru í raun kröfu­hafar en Reykja­nes­bær hag­hafi þess. Ef það gekk illa myndi sveit­ar­fé­lagið fá lítið til við­bótar við það sem þegar hafði verið greitt út, en ef vel gengi, og verð á hlutum í HS Orku myndi hækka, þá myndi Reykja­nes­bær hagn­ast veru­lega.

Selt á 8,8 milljarða króna

Seint á árinu 2018 barst til­boð í hlut ORK í HS Orku. Þar var á ferð­inni sviss­neska fjár­fest­inga­fé­lags­ins Dis­r­uptive Capital Renewable Energy AG. Móður­fé­lag DC Renewable Energy AG, Dis­r­uptive Capital Finance er skráð í kaup­höll­ina í Sviss. Eigandi félags­ins er Bretinn Edmund Truell sem hefur unnið lengi að því að koma á sæstreng milli Íslands og Bret­lands. Tilboð hans hljóm­aði upp þá rúma níu millj­arða króna, en hluti kaup­verðs­ins átti hins vegar að vera árang­urstengdur.

Salan var hins vegar ekki frá­gengin þótt til­boð hefði komið fram. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans átti Truell í erf­ið­leikum með að klára fjár­mögnun á kaup­unum.

Jarð­varmi, félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, steig þá inn og bauð í ORK-hlut­inn. Frá þeim kaup­samn­ingi var gengið í byrjun apríl.

Heim­ildir Kjarnans herma að kaup­verðið hafi verið 8,8 millj­arðar króna. Reykja­nes­bær getur því átt von á að fá rúm­lega fjóra millj­arða króna til við­bótar við það sem sveit­ar­fé­lagið fékk þegar það seldi skulda­bréfið upp­haf­lega.

Í ljósi þess að Reykja­nes­bær er eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins – skuldir sam­stæð­unnar voru um 45 millj­arðar króna í fyrra – og sam­fé­lagið þar mun verða fyrir umtals­verðum áhrifum vegna gjald­þrots WOW air og sam­dráttar í ferða­þjón­ustu, þá munu þeir fjár­munir sem falla til vegna sölu á hlut ORK, koma sér afar vel. Þeim verður öllum ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda.

Jarðvarmi gengur inn í fleiri tilboð

Þetta var ekki einu við­skiptin sem Jarð­varmi hefur gengið inn í á und­an­förnum vikum. Í lok mars var greint frá því að sjóður í stýr­ingu hjá Macquarie Infrastructure and Real Assets (MIRA) hefði und­ir­ritað kaup­samn­ing á 53,9 pró­sent hlut Magma Energy Sweden í íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu HS Orku á 304,8 millj­ónir dala, tæp­lega 37 millj­arða króna. Magma er í 100 pró­sent eigu kanadíska fyr­ir­tæk­is­ins Innergex Renewable Energy sem keypti móð­ur­fé­lag þess, Alterra Power, snemma árs 2018.

Jarð­varmi hefur ákveðið að ganga inn í þessi kaup líka, í sam­floti við breskt fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki, Ancala Partners.

Nú stendur yfir vinna við að ákveða hversu stóran hlut þeir líf­eyr­is­sjóðir sem standa að Jarð­varma vilja taka af þeim hlut og hversu mikið mun fara til Ancala Partners, sem sér­hæfir sig í inn­viða­fjár­fest­ingum í Evrópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum líf­eyr­is­sjóðum.

Ásgeir Margeirsson er forstjóri HS Orku.
Ásgeir Mar­geirs­son er for­stjóri HS Orku.

Þeirri vinnu á að ljúka fyrir maí­lok og við­mæl­endur Kjarnans telja að eign­ar­hald HS Orku verði þá lík­lega þannig að Jarð­varmi muni eiga um helm­ing og Ancala Partners um helm­ing.

En Jarð­varmi hefur samt sem áður tögl og hagldir í þróun HS Orku. Þegar félagið keypti sig upp­haf­lega inn í fyr­ir­tækið þá tryggði það sé ríka minni­hluta­vernd og form­lega aðkomu að öllum meiri­háttar ákvörð­unum á vegum HS Orku. Það sam­komu­lag felur því í sér neit­un­ar­vald gagn­vart öllum stórum ákvörð­unum.

Því neit­un­ar­valdi hefur Jarð­varmi beitt áður, þegar fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Blackstone hugð­ist kaupa 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á 95 millj­ónir evra, um 12,9 millj­arða króna á núvirði, sum­arið 2017. Sú ákvörðun var ekki vin­sæl á meðal stjórn­enda meiri­hluta­eig­enda HS Orku á þeim tíma.

Góður rekstur og falin verðmæti

Rekstur HS Orku virð­ist vera í mjög góðu standi um þessar mundir. Í árs­lok 2017 átti fyr­ir­tækið eigið fé upp á 35,5 millj­arða króna og skil­aði hagn­aði upp á 4,6 millj­arða króna. Þar voru eignir HS Orku metnar á 48,4 millj­arða króna en flestir sér­fræð­ingar eru sam­mála um að þær séu veru­lega van­metnar. Í þeim sama árs­reikn­ingi var nefni­lega 30 pró­sent eign­ar­hlutur fyr­ir­tæk­is­ins í Bláa lón­inu bók­færður á 2,7 millj­arð króna, sem er lík­ast til umtals­vert undir mark­aðsvirði í ljósi þess að Bláa lónið var verð­lagt á um 50 millj­arða króna alls í við­skiptum sem áttu sér stað tengt því í lok árs í fyrra.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem not­ast var við vegna söl­unnar á ráð­andi hlut til MIRA, sem nú liggur fyrir að ekk­ert verður af, og bar nafnið „Project Thor“, sagði að áætl­aður EBITDA-hagn­aður HS Orku (hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta) á árinu 2019 væri 31 milljón dala, eða um 3,7 millj­arðar króna. Þar er hins vegar einnig gert ráð fyrir að EBITDA-hagn­aður HS Orku muni nán­ast tvö­fald­ast á árinu 2023 og verða um 60 millj­ónir dala, eða um 7,2 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár