Bláa lónið verðlagt á 50 milljarða króna

Eign­ar­halds­fé­lagið Kólfur gerði nýlega sam­komu­lag við fram­taks­sjóð­inn Horn II um kaup á 20 pró­senta óbeinum hlut sjóðs í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða í Bláa lón­inu. Í því sam­komu­lagi er Bláa lónið metið á 50 millj­arða króna.

Bláa lónið er verð­metið á um 50 millj­arða króna í því sam­komu­lagi sem eign­ar­halds­fé­lagið Kólfur, sem er í meiri­hluta­eigu Gríms Sæmund­sen, for­stjóra Bláa lóns­ins, gerði nýlega við fram­taks­sjóð­inn Horn II um kaup á 49,45 pró­senta hlut sjóðs­ins í Hvatn­ingu. Hvatning heldur 39,1 pró­sents hlut í Bláa lón­inu og er því óbeinn eign­ar­hlutur sjóðs­ins rúm­lega 19,3 pró­sent. Frá þessu er greint í Mark­að­inum, fylgi­riti um við­skipti og efna­hags­mál.

Talsvert hærra verðmat en þegar Blackstone gerðu tilboð

[links]Miðað við kauptil­boð Kólfs er Bláa lónið metið á tals­vert hærra verði en þegar banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Blacstone ætl­aði að kaupa 30 pró­sent hlut í lón­inu af HS Orku sum­arið 2017. Tilboð Blackstone hljóð­aði þá upp á 95 millj­ónir evra, jafn­virði 13,3 millj­arða króna á núver­andi gengi, sem jafn­gildir því að mark­aðsvirði Bláa lóns­ins sé rúm­lega 44 millj­arðar króna. 

Ekkert varð hins vegar af söl­unni eftir að stjórn Jarð­varma, sam­lags­hluta­fé­lags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem fer með þriðj­ungs­hlut í HS Orku, ákvað að beita neit­un­ar­valdi sínu, á grund­velli hlut­hafa­sam­komu­lags um minni­hluta­vernd, og hafna til­boði Blackstone.

Hermann Þórisson, fram­kvæmda­stjóri Horns II, sem er í rekstri Lands­bréfa, sagð­ist í sam­tali við Mark­að­inn ekk­ert geta tjáð sig um kaup­verðið og vís­aði til trún­aðar.

Horn II mun renna sitt skeið á næsta ári

Stærstu hlut­hafar Horns II, sem eru einkum íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa kaup­rétt á sama gengi sem undir var í við­skipt­unum til loka jan­úar. Samkvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins hefur mik­ill meiri­hluti hlut­hafa Horns II í hyggju að nýta sér kaup­rétt­inn og þannig vera áfram óbeinir hlut­hafar í Bláa lón­inu. Það á hins vegar ekki við um Lands­bank­ann sem er þriðji stærsti hlut­hafi Horns II . Grímur Sæmunds­son mun á næst­unni halda fjár­festa­kynn­ingar á Bláa lón­inu fyrir hlut­hafa Horns II sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins

Í árs­reikn­ingi Horns II fyrir 2017 var hlutur sjóðs­ins í Hvatn­ingu met­inn á ríf­lega 8 millj­arða króna en miðað við núver­andi kauptil­boð Kólfs þá er virði hlut­ar­ins í kringum 9,5 millj­arða króna. Í umfjöllun Mark­að­ar­ins segir að til­urð við­skipt­anna má rekja til þess að líf­tími Horns II, sem stofn­aður var 2013, muni renna sitt skeið á næsta ári. Stærstu hlut­hafar sjóðs­ins eru Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður, hvor um sig með 18,17 pró­senta eign­ar­hlut. Aðrir stórir hlut­hafar eru meðal ann­ars Lands­bank­inn með 7,66 pró­senta hlut, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda með 5,85 pró­sent og þá nemur eign­ar­hlutur trygg­inga­fé­lags­ins VÍS 5,38 pró­sentum.

Hagnaður Bláa lónsins í fyrra var 31 milljón evra

Bláa lónið hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum. Í fyrra nam hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins, eftir skatta, 31 milljón evra og hækk­aði um þriðj­ung á milli ára. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu rúm­lega 102 millj­ónum evra, jafn­virði 14 millj­arða króna, á síð­asta ári og juk­ust um 25 millj­ónir evra á milli ára. EBITDA fyr­ir­tæk­is­ins jókst um lið­lega 39 pró­sent í fyrra og nam rúm­lega 39 millj­ónum evra.

Fyrir utan Hvatn­ingu og HS Orku eru helstu hlut­hafar Bláa lóns­ins eign­ar­halds­fé­lagið Keila með 9,2 pró­senta hlut en það er í meiri­hluta­eigu Hvatn­ingar. Aðrir hlut­hafar í Keilu eru meðal ann­ars Úlfar Stein­dórs­son, for­stjóri Toyota á Íslandi og vara­maður í stjórn Bláa lóns­ins. Þá eiga Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins, og Sigurður Arn­gríms­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi starfs­maður Morgan Stanley í London, einnig hvor um sig um 6,2 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár