Hvíta húsið ætlar að birta vikulega yfirlit yfir glæpi innflytjenda

Donald Trump og teymi hans hyggst fylgjast náið með glæpum innflytjenda í Banda­ríkjunum.

Donald Trump og stjórn hans hyggst fylgjast sérstak­lega náði með innflytjendum og afbrotum sem þeir fremja og mun Hvíta húsið standa fyrir því að birta vikulega yfirlit yfir glæpi sem innflytjendur fremja í Banda­ríkjunum.

Þetta kemur fram í skjölum sem starfslið Donalds Trumps hefur birt en Quartz segir að þessi aðferð minni um margt á svipaða glæpavakt innflytjenda sem vefurinn Breitbart News, sem einn aðal­ráðgjafa Trumps, Steve BannonSteve Bannon, stofnaði. Vefurinn er þekktur fyrir kynþátta­hatur og útbreiðslu fordóma gagnvart innflytjendum.

Á vefnum var meðal annars sérstök vakt sett upp, til að fylgjast með glæpum sem svartir í Banda­ríkjunum frömdu.

Vefurinn hefur verið gagn­rýndur harðlega fyrir að kynda undir kynþátta­hatri en Bannon hefur varið efnis­tökin og sagt að hann, og þeir sem skrifi á vefinn, séu í fullum rétti til að sýna Bandaríkja­mönnum þessa hlið á landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár