PLAY segir lága sætanýtingu í takt við væntingar

Sæta­nýting flug­félagsins PLAY var tæp 42 prósent í júlí og þarf að vera tæplega tvöfalt hærri á næstu mánuðum svo félagið standist eigin spár. Samkvæmt PLAY var nýtingin í takt við væntingar félagsins fyrir fyrsta mánuðinn í fullum rekstri.

Flug­félagið PLAY flutti alls 9.899 farþega í júlí og seldi 41,7 prósent af öllum flugsætum sem það hafði til sölu. Sæta­nýting félagsins var tæplega helmingi minni en hjá Icelandair í sama mánuði, en félagið þarf að auka sölu sína töluvert til þess að standast eigin áætlun fyrir árið.

Samkvæmt tilkynningu sem PLAY birti samhliða farþega­tölum sínum á vef Keldunnar fyrr í dag segir flug­félagið að árangur þess í síðasta mánuði hafi verið „mjög góður miðað við stöðuna á markaði“. Flug­félagið noti nú þrjár flugvélar sem séu allar komnar í notkun og séu að fljúga til sjö áfanga­staða.

Áfanga­staðirnir eru þeir sömu og félagið kynnti í fyrstu fjárfesta­kynningu sinni árið 2019 – Alicante, Berlín, Kaupmanna­höfn, London, París og Tenerife – auk Barcelona. Í vetur verður svo flogið til tveggja áfanga­staða í viðbót, Salzburg í Austur­ríki og Gran Canaria á Kanarí­eyjum.

Farþega­tölur PLAY eru nokkuð minni en hjá Icelandair, sem flutti 195.200 farþega í milli­landaflugi í síðasta mánuði og var með 70,5 prósenta sæta­nýtingu. Af þessum farþegum voru tæplega 51 þúsund talsins tengi­farþegar.

Þarf að tvöfalda sætanýtingu og sölu til að halda áætlun

Samkvæmt útboðs­lýsingu PLAY sem birtist fyrr í sumar reiknar flug­félagið með 71,8 prósenta sæta­nýtingu í ár. Til þess að þessar áætlanir standist þarf félagið að tæplega tvöfalda nýtinguna á næstu mánuðum, en hún þarf að vera að meðaltali 78 prósent frá ágúst til desember. PLAY gerir svo ráð fyrir því að sæta­nýting fari hækkandi með árunum og verði komin upp í 89 prósent árið 2025.

Í tilkynningu PLAY sem birt var í dag kemur þó fram að sæta­nýtingin í júlí hafi verið í takt við væntingar fyrir fyrsta rekstrar­mánuð flug­félagsins.

Líkt og útboðs­lýsingin greinir frá hefur sæta­nýtingin mikil áhrif á lausafjár­stöðu félagsins. Ef spáð sæta­nýting verður sex prósentum lægri en flug­félagið býst við á næstu þremur árum gæti lausafé þess minnkað um meira en helming.

Alls telur félagið að 143 þúsund sæti muni seljast í ár, en til þess að sú spá gangi upp þarf félagið að flytja að meðaltali 26 þúsund farþega á mánuði frá ágúst til desember.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár