Trump: Í Bretlandi verður fólkið „sem þið viljið hafa“

Trump og Theresa May, forsætis­ráðherra, Bretlands áttu fund í Hvíta húsinu.

Don­ald J. Trump, Banda­ríkja­for­seti, tel­ur að út­ganga Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu muni reyn­ast mikil gæfa fyr­ir Breta. Þetta sagði hann á fundi með Theresu May, forsætis­ráðherra Bretlands, í Hvíta húsinu í dag.

„Ég tel að með tím­an­um þú munið þið hafa ykk­ar sér­stöðu og þið munið hafa í land­inu fólkið sem þið viljið hafa,“ sagði Trump meðal annars. Hann sagði Breta og Bandaríkja­menn geta átt mikla samleið, meðal annars á sviði varnar­mála og viðskipta.



Bretar eiga mikla hagsmuni undir viðskipta­samningum við Bandaríkja­menn en um 14 prósent af heildar­útflutningi Breta fer til Banda­ríkjanna. Stærsta einstaka útflutnings­svæði Bretlands er þó inni markaður EES í Evrópu.

Trump talaði fyrir því að Bretar gætu nú gert hlutina alveg „frjálsir“ og að það myndi koma þeim til góða að hafa ekki Evrópu­sambandið sem yfirvalda þegar kæmi að viðskiptum. Þá myndu þeir stjórna land­mærunum betur og velja bera fólk til búsetu í Bretlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár