Píratar taka stökk í fylgi

Minna en helmingur lands­manna styður ríkis­stjórnar­flokkana, en sjálf ríkis­stjórnin hefur verulega stuðning.

Vinsæl ríkisstjórn
Vinsæl rík­is­stjórn Tveir þriðju hlutar lands­manna styðja rík­is­stjórn­ina, en innan við helm­ingur þá flokka sem eiga aðild að henni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný skoðana­könnun leiðir í ljós að fylgi Pírata tekur mikið stökk, en Flokkur fólksins tapar miklu fylgi.

Þá mælast ríkis­stjórnar­flokkarnir þrír með minna en helmings­fylgi, eða 48 prósent. Þrátt fyrir það nýtur ríkis­stjórnin sem slík stuðnings 66,7 prósenta svarenda sem er mesti stuðningur við ríkis­stjórn frá hruni. Það er þó töluvert minni stuðningur en mældist í könnun Stöðvar 2 fyrr í desember, þegar 78 prósent svarenda kváðust styðja ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur.

Í nýbirtri  könnun MMR mælast Píratar með 14,1% fylgi, en þeir fengu 9,2 prósent atkvæða í alþingis­kosningunum í lok október. Sjálfstæðis­flokkurinn heldur stöðu sinni sem stærsti flokkurinn, en með tveimur prósentu­stigum minna fylgi en í kosningunum, eða 23,2 prósent. Vinstri grænir falla naumlega niður fyrir Samfylkinguna úr stöðu næst stærsta stjórn­málaflokks landsins með 16,7 prósenta fylgi, þótt munurinn sé ekki marktækur.

MMR gerði könnunina á tíma­bilinu 12. til 15. desember. 

Fylgi stjórnmálaflokka

Sjálfstæðis­flokkur 23,2%

Samfylkingin 16,8%

Vinstri grænir 16,7%

Píratar 14,1%

Miðflokkurinn 8,7%

Framsóknar­flokkurinn 8,5%

Viðreisn 5,7%

Flokkur fólksins 3,7%

Annað 2,5%

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár