Ellefu fylgdarlaus flóttabörn á Íslandi: „Þeim finnst að enginn vilji sjá þau“

Talsmaður hælis­leitenda hjá Rauða krossinum segir úrræði nauðsyn­lega vanta sem gagnist börnum og ungmennum allt að 22 ára gömlum.

Guðríður Lára Þrastardóttir
Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir Tals­maður hæl­is­leit­enda hjá Rauða krossi Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Ellefu fylgdar­laus börn bíða úrlausnar sinna mála hér á landi. Í hópnum eru meðal annars krakkar frá Sýrlandi, Írak, Marokkó, Alsír, Túnis og Sómalíu, sem mörg hafa varið löngum tíma í að ferðast í gegnum Evrópu. Þau hafa verið hér frá nokkrum vikum upp undir ár og bíða þess og vona að þau geti hafið nýtt líf. Guðríður Lára Þrastar­dóttir, talsmaður hælis­leitenda hjá Rauða krossinum, hefur hitt þau flest og sett sig inn í mál þeirra. Hún segir þeim líða illa. „Þau tala sum um að þau vilji ekki lifa lengur. Þau vilja bara lifa eðlilegu lífi og ganga í skóla en fá ekki að gera það. Þeim finnst að enginn vilji sjá þau.“

Eitt barnanna er hinn sextán ára Muhiyo Hamud frá Sómalíu. Hann var fjórtán ára þegar hann flúði Sómalíu eftir að hafa verið í haldi hryðjuverka­samtakanna Alshabab og komst lífs af þegar bát hans hvolfdi á leiðinni yfir Miðjarðar­hafið. Hann hefur tvisvar reynt að svipta sig lífi. Hælis­umsókn hans var synjað í Svíþjóð og nú hefur hann beðið í 7 mánuði eftir því að mál hans verði tekið upp hér á landi. Hann deilir sögu sinni í nýjasta tölublaði Stundarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár