Rosenstein og Trump funda á fimmtudaginn

Aðstoðar­dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna er sagður valtur í sessi.

Donald Trump Bandaríkja­forseti mun á fimmtudaginn funda með Rod Rosenstein, aðstoðar­dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, en fjöl­miðlar í Banda­ríkjunum greindu frá því í dag að Rosenstein væri að íhuga að segja af sér.

Ástæðan sem fjallað hefur verið um, er sögð fjömiðlaumfjöllun New York Times á undan­förnum dögum en þar var Rosenstein sagður hafa lagt það til við starfs­fólk í Hvíta húsinu, og samstarfs­fólk sitt, að Trump yrði tekinn upp leynilega, svo að fólk gæti heyrt hvað gengi á í Hvíta húsinu.

Er Rosenstein sagður hafa talað fyrir því að virkja 25. grein stjórnar­skrárinnar til að koma Trump úr embætti forseta á grund­velli þess að hann sé ekki hæfur til að gegna embættinu.

Vefurinn Axios greindi frá því í dag, að Rosenstein ætlaði sér að hætta sem ráðherra, áður en Trump myndi sjálfur hafa frum­kvæðið að því að hann yrði rekinn úr embætti.

Trump hefur átt í miklum útistöðum við dómsmála­ráðuneytið og hefur meðal annars gagnrýnt ráðherrann, Jeff Sessions, opinber­lega og sagt hann vanhæfan í starfi. Þá hefur hann einnig beint spjótunum að Rosenstein og sagt að hann ætti að beita sér fyrir því að Rússa­rann­sókninni svonefndu, sem Robert Mueller stýrir, verði hætt.

Í umfjöllun New York Times er frá því greint, að Rosenstein hafi sagt sínum samstarfs­mönnum, að hann telji að Trump ætli sér að reka hann úr embætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár