Drottningin gefur samþykki fyrir „Megxit“

Töluverður titringur hefur verið innan bresku konungs­fjöl­skyldunnar vegna þess að Harry og Meghan vilja breyta um lífstíl, og yfirgefa hefð­bundin störf fyrir konungs­fjöl­skylunda. Elísabet drottning hefur samþykt það fyrir sitt leyti.

Elísabet Breta­drottning hefur samþykkt að Harry og Meghan fái sitt „Megxit“ og yfirgefi öll opinber hlutverk sín fyrir konungs­fjöl­skylduna.

Þau ætla að setjast að í Vancouver í Kanada og móta sína eigin framtíð, og hafa það markmið að verða „fjárhags­lega sjálfstæð“.

Elísabet segir í yfir­lýsingu að hún hefði frekar kosið að hafa Harry og Meghan í áfram­haldandi hlut­verkum fyrir bresku konungs­fjöl­skylduna, en hún hafi skilning á því að þau vilji breyta til.

Fundurinn fórm með bróður Harry, William, og Karli Breta­prins. Markle tók hins vegar þátt í fundinum í gegnum fjarfundar­búnað frá Kanada.

Í yfir­lýsingu segir Elísabet að Harry og Meghan hafi gefið það skýrt til kynna, að þau vilji ekki vera upp á opinbera sjóði komin, og ætli sér að byggja upp eigin framtíð.

Þá segir hún að ennþá eigi eftir að klára mál, og að sum þeirra séu flókin, en að loka­ákvarðanir um málin muni liggja fyrir að næstu dögum.

Meghan Markle er 38 ára gömul, en Harry 35 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár