Bresk þingnefnd hvetur til refsinga gegn samfélagsmiðlum

Nefnd breska fjölmiðla­ráðuneytisins um aðgerðir gegn fals­fréttum mældi með harðri löggjöf gegn samfélags­miðlum.

Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Facebook.
Mark Zuckerberg, fram­kvæmda­stjóri Facebook. Mynd: EPA

Bresk þingnefnd um stafræna miðla, íþróttir og menningu mældu með harðari löggjöf gegn samfélags­miðlum í skýrslu sinni um fals­fréttir sem átti að hafa verið birt í gær en var lekið á netið.

Skýrslunni var lekið af Dominic Cummings, sem fór fyrir framboði breskra útgöngu­sinna úr Evrópu­sambandinu fyrir kosningarnar 2016, en hann var gagn­rýndur harðlega í henni. Cummings úthrópaði sjálfur niður­stöður skýrslunnar sem „fals­fréttir,“ en það var einmitt umfjöllunar­efni skýrslunnar.

Samkvæmt umfjöllun CNN um skýrsluna, fór þing­nefndin yfir misvísandi upplýsingar sem birtar hafa verið á samfélags­miðlum og tengsl þær við kosningar í Bretlandi. Skýrslan greinir meðal annars frá auglýsingum stjórn­málamanna, hneykslisins í kringum breska greiningar­fyrirtækið Cambridge Analytica, Brexit-atkvæða­greiðsluna, rússneska íhlutun í kosningum þar í landi og kosninga­lögum.

Í skýrslunni mældu nefndin einnig með harðari löggjöf gegn samfélags­miðlum sem birta misvísandi auglýsingar og fals­fréttir og gagnrýnir sérstak­lega Facebook fyrir „stöðuga tregðu“ gegn því að koma á fót innri rannsókn um það hvort og hvernig Rússland notaði miðilinn til að hafa áhrif á val kjósenda. Enn fremur kallaði nefndin forstjóra miðilsins, Mark Zuckerberg, til að sitja fyrir svörum hjá þeim.

Facebook á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en verðmiði fyrir­tækisins hefur lækkað um rúmar 119 milljarða Bandaríkja­dala eftir að uppgjör félagsins birtist í síðustu viku. Fram undan eru málsóknir á hendur Zuckerberg, sem liggur undir harðri gagnrýni vegna leka Cambridge Analytica á persónu­upplýsingum notenda miðilsins.

Auk þess lagði nefndin til að bann við pólitískum auglýsingum á samfélags­miðlum nálægt kjördag ættu að vera tekið til greina, auk sérstakrar skatt­lagningar á auglýsinga­tekjum miðlanna til að fjármagna herferð um fjölmiðla­læsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár