Facebook minnkar um 4,5-falda landsframleiðslu Íslands

Markaðs­virði samfélags­miðla­fyrir­tækisins hefur hríð­fallið fyrsta daginn eftir afkomu­viðvörun félagsins og er jafnt lands­framleiðslu Íslands til margra ára.

Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Facebook.
Mark Zuckerberg, fram­kvæmda­stjóri Facebook. Mynd: EPA

Markaðs­virði Facebook hefur minnkað um meira en 11.600 milljarða íslenskra króna eftir afkomu­viðvörun frá fjármála­stjóra fyrir­tækisins. Fallið jafn­gildir 4,5-faldri lands­framleiðslu Íslands, en það er næst­stærsta fall sögunnar hjá skráðu fyrirtæki á einum degi. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Síðdegis í gær birti samfélags­miðillinn rekstrar­niðurstöðu sína fyrir annan ársfjórðung, en samkvæmt honum hagnaðist fyrir­tækið um 5,1 milljón Bandaríkja­dala og jókst hann um 42% milli ára. Hagnaðar­hlutfallið var 31% og fjöldi daglegra notenda jókst um 11% miðað við sama tímabil í fyrra.

Þrátt fyrir tiltölu­lega jákvæða rekstrar­niðurstöðu urðu fjár­festar fyrir miklum vonbrigðum þar sem búist var við enn betri útkomu, auk þess sem vöxtur daglegra notenda var lítill á stærstu auglýsinga­mörkuðum félagsins, Banda­ríkjunum og Evrópu.

Í kjölfar birtingar uppgjörsins sendi Facebook svo frá sér afkomu­viðvörun þar sem fyrir­tækið bjóst við enn frekari samdrætti í tekju­vexti félagsins á næstu tveimur ársfjórðungum. Auk þess tilkynnti miðillinn samdrátt í fyrsta skipti samdrátt í fjölda notenda í Evrópu, en þar fækkaði þeim um þrjár milljónir.

Framkvæmda­stjóri Facebook, Mark Zuckerberg, segir auknar fjár­festingar fyrir­tækisins í öryggis­málum hafi mest áhrif á samdrátt tekju­vaxtarins, en fyrir­tækið réðst í þær í kjölfar Cambridge Analytica-hneykslisins sem skók fyrir­tækið fyrr í ár. Hneykslið snerist um notkun á persónu­upplýsingum 87 milljóna manna í auglýsinga­skyni, en Zuckerberg þurfti sjálfur að sitja fyrir svörum hjá Banda­ríkjaþingi og Evrópu­þingi vegna þess.

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskipta­ráðs, vakti athygli á stóru tapi Facebook í Twitter-færslu í gærkvöldi, en þá hafði hlutabréfa­verð samfélags­miðilsins lækkað um 24% rétt eftir afkomu­viðvörun þess. Með því lækkaði markaðs­virði fyrir­tækisins um 15.300 milljarða íslenskra króna, en það jafn­gildir sexfaldri lands­framleiðslu Íslands. Tístið má sjá hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár