Lögsóknir á hendur Zuckerberg - Virði Facebook hrynur

Hluthafar eru ósáttir við gang mála hjá Facebook.

Framundan eru málsóknir á hendur Mark Zuckerberg, forstjóra og stofnanda Facebook, en hluthafar eru ósáttir við ganga mála hjá fyrir­tækinu eftir að verðmiði þess hrundi um fimmtung fyrr í vikunni eftir að uppgjör félagsins var birt, sem var langt undir væntingum.

Verðmiði fyrir­tækisins er nú búinn að lækka um 119 milljarða Bandaríkja­dala á tveimur síðustu viðskipta­dögum, eða sem nemur meira en 12 þúsund milljörðum króna.

Í umfjöllun Reuters kemur fram að einn hluthafi fyrir­tækisins, James Kacouris, sé að undirbúa hópmálsókn en hann hefur sjálfur lagt fram kæru. Hún snýr að því að Facebook hafi brotið gegn lögum um verð­bréfa­viðskipti, með ónægri eða rangri upplýsinga­gjöf til markaðarins og fjárfesta.

Óhætt er að segja að Zuckerberg hafi staðið í ströngu undan­farin misseri, enda hefur fyritækið verið sakað um að vera miðpunkturinn í uppgangi popúlisma í stjórn­málum í heiminum og að hagsmuna­aðilar hafi með óeðli­legum hætti komist yfir gögn um notendur og nýtt þau til þess að hafa áhrif á kosningar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár