GusGus gefur tuttugu miða á tónleika eftir faraldurinn

Lesendur Stundarinnar geta tekið þátt í útdráttar­leik og fengið gefins miða á tónleika GusGus sem haldnir verða þegar lífið heldur áfram eftir faraldurinn.

GusGus á sviði Uppselt er á tvenna tónleika GusGus sem haldnir verða næsta haust, en bætt hefur verið við þriðju tónleikunum og verða 20 miðar gefnir á Stundinni

Nú þegar uppselt er á tvenna tónleika GusGus í nóvember næst­komandi hefur hljóm­sveitin ákveðið að gefa tuttugu miða á þriðju tónleikana í Eldborgarsal Hörpu, í samstarfi við Stundina.

Um er að ræða 25 ára afmælis­tónleika GusGus sem haldnir verða 6. til 7. nóvember næst­komandi. Með þessu er ætlunin að leiða huga fólks að því að lífið heldur áfram sinn vanagang eftir að COVID-19 faraldrinum slotar og samkomu­banni verður aflétt.

Þátttaka í útdráttar­leiknum krefst þess að skrá nafn sitt í ummælum hér fyrir neðan fréttina og tilgreina þar hvaða lag með GusGus er í uppáhaldi hjá viðkomandi, ásamt því að deila fréttinni. 

Dregið verður í leiknum á Páskadag, sunnu­daginn 12. apríl. Sem fyrr segir er uppselt á tvenna tónleika hljóm­sveitarinnar. Ákveðið var að bæta við þriðju tónleikunum og hefst miðasala á þá fimmtudaginn 2. apríl.

Á tónleikunum munu fyrri meðlimir GusGus einnig koma fram til að flytja mörg af vinsælustu og bestu lögum hljóm­sveitarinnar í gegnum árin.

Fram koma, ásamt GusGus: Daníel Ágúst Haraldsson, Emiliana Torrini, John Grant, Högni Egilsson, Magnús Jónsson og President Bongo.

GusGus hélt áður tónleika í Eldborgar­salnum fyrir ári síðan, við góðar viðtökur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár