Hvetur ungt fólk til að búa lengur í foreldrahúsum

Eygló Harð­ar­dóttir vill að ungt fólk fari hægt í gegnum námið og lifi spar­lega.

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hvetur ung­menni til að spara og búa lengur í for­eldra­húsum. Þetta kemur fram í blogg­pistli sem hún birti á Eyjunni í gær.

Þar tekur hún dæmi af gömlum vinum „sem settu alltaf 10 til 20% af launum sínum um hver mán­að­ar­mót inn á banka­bók áður en nokkuð annað var borgað [...] fóru hægar í gegnum háskóla­námið til að þurfa ekki að taka náms­lán, bjuggu lengur heima til að geta sparað fyrir hús­næði eða tóku strætó í vinn­una til að geta borgað hraðar niður íbúða­lánið“.

Hún stillir þessum vinum upp and­spænis sjálfri sér, en sjálf seg­ist hún hafa safnað skuldum: „Ef það var eitt­hvað sem mig lang­aði í, þá rölti ég í næstu lána­stofnun og við­kunn­an­legi þjón­ustu­full­trú­inn bjarg­aði því fyrir mig.  Yfir­drátt­ar­lán brú­aði bilið þar til LÍN borg­aði út náms­lánin, banka­lán dekk­aði það sem upp á vant­aði, 90% verð­tryggt íbúða­lán hjálp­aði til við fyrstu kaupin og 100% geng­is­tryggður bíla­samn­ingur redd­aði bílnum. Í fæstum til­vikum átti ég eitt­hvað sparifé upp í fjár­fest­ingar mínar, hvort sem um var að ræða mennt­un­ina, bíl­inn eða íbúða­kaupin.“

Eygló hvetur ung­menni til að taka sér vini sína til fyr­ir­myndar. Hún segir valið standa á milli þess og að hverfa aftur til árs­ins 2007.

„Ein­hverjir af mínum skyn­sömu og ráð­deild­ar­sömu vinum höfðu reiknað þetta út fyrir löngu, keypt sér strætókort, þakkað fyrir að geta búið heima aðeins lengur og fengið sér Frelsi fyrir gamla Nokia sím­ann. Við gætum vel lært af þeim, nema við viljum bara hverfa aftur til árs­ins 2007. Við höfum valið,“ skrifar ráð­herr­ann.

Hér má lesa pistil hennar í heild. Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur einnig skrifað pistil til höf­uðs gámafor­dómum, sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár