Presturinn tapaði meiðyrðamálinu

Krist­björn Gunnarsson mátti kalla séra Hildi Björk Hörpu­dóttur tálmana­móður á Facebook og lýsa því að það væri sorgar­dagur þegar hún var skipuð sem sóknar­prestur. Dómari gerði þó hinum sýknaða að greiða fyrir eigin vörn.

Tapaði
Tapaði Hildur Björk Hörpu­dóttir vildi ekki una því að vera kölluð tálm­ana­móðir á Facebook. Hún stefndi mági fyrr­ver­andi eig­in­manns sín en gjörtap­aði mál­inu í und­ir­rétti. Mynd: Kirkjan

Séra Hildur Björk Hörpu­dóttir, sóknar­prestur á Reykhólum, tapaði meiðyrða­máli sem hún höfðaði á hendur mági fyrr­verandi eigin­manns síns. Forsaga málsins er sú að Hildur Björk skildi við eiginmann sinn árið 2007 og hefur tálmað umgengni hans við börn þeirra tvö, þvert á úrskurð um það að faðirinn eigi umgengnis­rétt. Hvorki faðir barnanna né föður­fjölskylda hafa fengið að hitta börnin. Séra Hildur hefur verið sektuð fyrir að brjóta á rétti fyrr­verandi eigin­manns síns. 

Upphaf meiðyrða­málsins var að Krist­björn Gunnarsson lét falla hörð ummæla á Facebook um Hildi Björk þar sem hann lýsti furðu sinni á því að tálmana­móðir væri skipuð sem sóknar­prestur á Reykhólum í byrjun ársins.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár