Árni Páll um Björgvin: „Hefur ekki verið sakaður um fjárdrátt“

„Ég baðst afsök­unar á mis­tökum mínum og leit­aði mér aðstoðar,“ segir Björgvin G. Sig­urðs­son sem tók vara­þing­sæti í gær. Hann hætti sem sveit­ar­stjóri í kjöl­far ásak­ana um fjár­drátt og við­ur­kenndi að hafa brotið gegn starfs­skyldum sínum.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ber fullt traust til Björg­vins G. Sig­urðs­sonar vara­þing­manns. Björgvin tók sæti Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur á Alþingi í gær, en fyrr á árinu var hann leystur frá störfum sem sveit­ar­stjóri Ása­hrepps eftir að hafa brotið gegn starfs­skyldum sínum með því að ráð­stafa fjár­munum úr sveit­ar­sjóðnum án heim­ildar.

„Ég gerði upp öll mín mál hrein­skiln­is­lega, ég baðst afsök­unar á mis­tökum mínum og leit­aði mér aðstoðar. Ég vann úr því eins vel og ég gat og mér hefur gengið vel síðan. Ef ég teldi að svo væri ekki, þá myndi ég meta þetta með öðrum hætti,“ segir Björgvin í sam­tali við Stundina, aðspurður hvort ekki hefði verið eðli­legra að hann end­ur­nýj­aði sitt lýð­ræð­is­lega umboð áður en hann tæki sæti á þingi. 

„Lýsi yfir fullu trausti“

„Björgvin G. Sig­urðs­son hefur ekki verið sak­aður um fjár­drátt,“ sagði Árni Páll í við­tali við Frosta og Mána í sjón­varps­út­gáfu Harma­geddon í gær­kvöldi. Þegar spyrl­arnir bentu á að Björgvin hefði vissu­lega verið sak­aður um fjár­drátt sagði Árni: „Já, af mönnum sem síð­ast báð­ust afsök­unar á að hafa gert það. Hann var í opin­beru starfi hjá opin­berum aðilum þar sem eru ríkar kröfur til þess að kæra til lög­reglu ef eitt­hvað óeðli­legt er á seyði. Ef að eitt­hvað kæru­mál hefði komið upp hefði málið að sjálf­sögðu blasað öðru­vísi við.“ 

Ungir jafn­að­ar­menn hafa tví­vegis hvatt Björgvin til að stíga til hliðar sem vara­þing­maður. Árni Páll kveðst „ger­sam­lega ósam­mála“ því sjón­ar­miði. „Það er bara ósköp ein­fald­lega þannig að Björgvin lauk sínum við­skiptum við sinn vinnu­veit­anda með sam­komu­lagi sem báðir aðilar stóðu að og við þær aðstæður get ég ekki haft neitt um það að segja. Þannig að ég lýsi yfir fullu trausti til hans.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár