Tollamúrar Trump eru „hættulegur leikur“

Miklar efasemdir eru meðal Evrópu­ríkja um tolla Bandaríkja­stjórnar á innflutning á stáli og áli frá Evrópu.

Cecilia Malmstrom, framkvæmda­stjóri Evrópu­sambandsins þegar kemur að viðskiptum, segir að tollamúra Donalds Trumps gagnvart Evrópu­sambandinu, Kanada og Mexíó - og eftir atvikum fleiri ríkjum - vera hættu­legan leik.

Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC, en líkur eru nú taldar á því að allsherjar tolla­stríð muni brjótast út vítt og breitt um heiminn, ef Banda­ríkin halda aðgerðunum sínum til streitu.

Hún segir að Evrópu­sambandið muni láta reyna á það hjá Alþjóða­viðskipta­stofnuninni hvort þessar aðgerðir standist lög. 

Í gær tóku ákvarðanir Trumps og bandarískra stjórn­valda gildi, en í þeim felst að innflutt stál frá Evrópu­sambands­ríkjum, Kanada og Mexíkó ber 25 prósent toll og innflutt ál frá sömu ríkjum 10 prósent toll.

Evrópu­sambandið hefur þegar sagt, að það muni bregðast við með tollum á innflutning á vörum frá Banda­ríkjunum, jafnvel þó það sé ekki vilji sambandsins að fara í tolla­stríð við Banda­ríkin. Það sé ekki hægt að sitja hjá og gera ekkert, þar sem aðgerðir stjórn­valda í Banda­ríkjunum séu bæði rangar og geti leitt af sér mikla erfið­leika að óþörfu.

Macron Frakk­lands­forseti hefur þegar upplýst um það, að hann hafi hringt í Trump og sagt að tollarnir á Evrópu­sambandið væru skýrt brot á alþjóða­lögum. Trump hefur svarað því til, að Banda­ríkin geti gert það sem þau vilji og telji best fyrir Banda­ríkin. Þar á meðal sé að vernda bandarísk fyrirtæki í málm­iðnaði. Hann gekk raunar svo langt í gær, að segja að tollarnir væru í þjóðar­öryggismál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár