Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ráðherravalið „lítilsvirðingu“

Einn þingmanna Sjálfstæðis­flokksins gagnrýnir harðlega ráðherraval Bjarna Benedikts­sonar. Páll Magnússon vann kosninga­sigur sem oddviti flokksins í suður­kjördæmi.

Páll Magnússon
Páll Magn­ús­son Fékk eina bestu nið­ur­stöðu allra odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins en fékk ekki ráð­herra­stól. Mynd: xd.is

Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í suður­kjördæmi, gagnrýnir harðlega ráðherraval Bjarna Benedikts­sonar, formanns flokksins.

Þrátt fyrir að hafa unnið einn stærsta kosninga­sigur Sjálfstæðis­flokksins var Páll ekki valinn ráðherra. 

Meðal þeirra sem fengu ráðherra­stól eru frjáls­hyggju­konan Sigríður Á. Andersen, sem er áttundi þingmaður Reykja­víkur­kjördæmis suður.

Páll segir á Facebook-síðu sinni að hann hafi ekki stutt ráðherraval Bjarna. „Á þing­flokksfundi í gærkvöldi sagðist ég því miður ekki geta stutt þá ráðherra­skipan sem formaður flokksins gerði tillögu um. Fyrir því væru tvær ástæður: Í fyrsta lagi gengi þessi skipan í veiga­miklum atriðum gegn því lýðræðis­lega umboði sem þingmenn Sjálfstæðis­flokksins hefðu áunnið sér í próf­kjörum og síðan kosningum í haust. Í öðru lagi fæli hún í sér lítilsvirðingu gagnvart Suður­kjördæmi þar sem Sjálfstæðis­flokkurinn vann sinn stærsta sigur í kosningunum.“

Sjá færsl­una á Facebook

Veikari oddvitar fengu ráðherrastól

Samkvæmt heimildum Stundarinnar fór Páll Magnússon hratt, örugglega og orðlaust af fundi í Valhöll í gærkvöldi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti flokksins í Reykjavík norður, er einn þeirra sem fékk ráðherra­stól, en flokkurinn fékk 24,4 prósent stuðning í kjördæmi hans, þann minnsta á landinu.

Sjálfstæðis­flokkurinn fékk 31,5 prósent stuðning í suður­kjördæmi, sem gerir það að sterkasta kjördæmi flokksins fyrir utan Suðvestur­kjördæmi, þar sem Bjarni leiddi flokkinn. Oddviti flokksins í Norðaustur­kjördæmi, Kristján Þór Júlíusson, fékk einnig ráðherra­stól þótt stuðningur við flokkinn í hans kjördæmi hafi verið 26,5 prósent.

Ný ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefur aðeins eins manns meirihluta á Alþingi.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár