„Það er tími til að velja hvar í þessu nýja landslagi stórvelda Ísland verður“

Gylfi Zoega segir Ísland þurfi að hámarka kosti og lágmarka kostnað þess að vera sjálfstætt ríki. Samkvæmt honum er það gert innan NATO og innri markaðar Evrópu­sambandsins.

Hagsmunum Íslands, sem þarf að reiða sig á alþjóða­samvinnu vegna smæðar sinnar, er best borgið með aðild að Atlantshafs­bandalaginu (NATO) og í nánu samstarfi við lýðræðis­ríki Evrópu. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor við Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Kostir og gallar við smæð Íslands

Í greininni sýnir Gylfi fram á kosti þess og galla við að vera smáríki út frá hagfræði­legum kenningum. Ábatinn sé sá að íbúar séu yfirleitt samleitnari, sem geri lýðræðis­lega ákvörðunatöku auðveldari. Því til stuðnings nefnir hann smáríki Norður­landa, þar sem jafnan er auðveldara að ná sátt um niður­stöður um ráðstöfun skatt­tekna og uppbyggingu velferðar­kerfisins.

Hins vegar fylgi smæðinni einnig kostnaður, sem kemur í veg fyrir að Norður­löndin sundrist í enn smærri einingar og fylki Banda­ríkjanna lýsi yfir sjálf­stæði. Dæmi um slíkan kostnað eru ýmis almanna­gæði sem hagkvæmara er að hafa í stórum ríkjum, líkt og land­varnir og gjald­miðill.

Gylfi segir að nauðsynlegt sé að hafa þessa kosti og galla til hliðsjónar þegar stjórn­völd Íslands eigi að hámarka velferð landsins. Að hans mati er það gert með því að njóta sameiginlegra varna NATO-ríkjanna og sameiginlegan markað Evrópu­sambandsins.

ESB mikilvægara fyrir Ísland en áður

Samkvæmt Gylfa hefur mikilvægi Evrópu­sambandsins fyrir Ísland aukist til muna á síðustu árum, eftir því sem alþjóða­væðingu hefur farið aftur og efnahagsleg tengsl á milli austurs og vesturs hafa minnkað. Samhliða því mun innri markaður aðildar­ríkja sambandsins skipta meira máli fyrir íslenskan útflutning, en einnig mun land­fræðileg lega Íslands skipta miklu máli fyrir Evrópu­ríki, sem munu auka land­varnir sínar og hernaðar­mátt til að geta varist Rússum.

Gylfi segir Evrópu­sambandið þegar hafa sannað mikilvægi sitt fyrir innrás Rússa inn í Úkraínu, með þróun og dreifingu bóluefna gegn kórónu­veirunni. Íslendingar nutu góðs af þessu fyrir­komulagi, sem tryggði öllum ríkjum innan samtak­anna, smáum sem stórum, jafnan rétt að bólu­efnunum.

Hann bætir því einnig við að fyrri hugmyndir Íslands um að hér gæti risið alþjóðleg fjármála­miðstöð sem ekki nyti þeirra samgæða sem felast í traustri mynt, fjármála­eftirliti og sterkum seðla­banka, hafi reynst byggðar á sandi. Sömuleiðis byggjast hugmyndir um að gefa Evrópu­samstarf upp á bátinn og bjóða Kína velkomið á sama sandi.

„Það er tími til að velja hvar í þessu nýja landslagi stórvelda Ísland verður,“ skrifar Gylfi. „Vonandi verður það á meðal lýðræðis­ríkja Evrópu.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár