194 látnir í Ankara - Valdaránstilraun brotin á bak aftur

Forsetinn Tayyip Erdogan segir að atburðirnir muni ekki gleymast. Þeir marki tímamót.

Samtals eru 104 úr röðum uppreisnar­manna, sagðir hafa látist í valda­ráns­tilrauninni í Tyrklandi í gærkvöldi og nótt. Þá eru 90 aðrir sagðir hafa látist, bæði almennir borgarar og lögreglu­menn.

Sautján lögreglu­menn úr röðum sérsveitarinnar létust í þyrluárás á bækistöðvar hennar, skömmu eftir að aðgerðir uppreisnar­manna hófust.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC hafa 1.563 verið hand­teknir, og 1.154 særðust í átökum í nótt.

Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur sagt í opinberu ávarpi að stjórn­völd og almenningur á götum úti, hafi tekist að brjóta valda­ráns­tilraunina á bak aftur með því að taka höndum saman. Þeir sem hafi staðið á bak við hana hafi gerst sekir um „landráð og svik“ og að þetti muni ekki gleymast. 

Fréttin verður uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár