Kastljós braut ekki siðareglur með umfjöllun um Vegagerðina

Kastljós, frétta­skýringa­þáttur RÚV, braut ekki gegn siða­reglum Blaðamanna­félags Íslands með umfjöllun sinni um Vega­gerðina og meint hagsmuna­tengsl við innkaup á vegum hennar. Umfjöllunin var sýnd í desember síðastliðnum. Starfs­maður Vega­gerðarinnar, sem var til umfjöllunar í þættinum, taldi umfjöllunina hafa brotið gegn æru hans.

Í Kastljós­þættinum kom meðal annars fram að Vega­gerðin hefði átt í viðskiptum við ættingja starfs­manna, fyrrum starfs­menn og jafnvel þá starfs­mennina sjálfa. Um er að ræða hundruð milljóna króna viðskipti við bróður deildar­stjóra hjá Vega­gerðinni, hundruð milljóna króna verktöku fyrrum starfs­manns Vega­gerðarinnar fyrir hana og kaup á ræstingum fyrir útibúi Vega­gerðarinnar í Hafnar­firði af fyrirtæki í eigu deildar­stjóra þess og eiginkonu hans.

Sá sem kærði Kastljós fyrir siðanefnd Blaðamanna­félags Íslands er deildar­stjóri þjónustu­deildar Vega­gerðarinnar. Deild hans átti í miklum viðskiptum við fyrirtæki í eigu bróður mannsins.

Í niður­stöðum Siða­nefndar segir að umfjöllun Kastljóss hafi ekki verið brot á siða­reglum Blaðamanna­félagsins Íslands. Ábendingar um meint brot á lögum og reglum hafi fyrst og síðast snúið að Vega­gerðinni en ekki manninum persónu­lega. Ekkert í siða­reglunum standi í vegi fyrir að heimilt hafi verið að nafn­greina manninn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár