Vegagerðin í hundruð milljóna viðskiptum við ættingja starfsmanna

Vega­gerðin hefur átt í viðskiptum við ættingja starfs­manna, fyrrum starfs­menn og jafnvel þá starfs­mennina sjálfa. Um er að ræða hundruð milljóna króna viðskipti við bróður deildar­stjóra hjá Vega­gerðinni, hundruð milljóna króna verktöku fyrrum starfs­manns Vega­gerðarinnar fyrir hana og kaup á ræstingum fyrir útibúi Vega­gerðarinnar í Hafnar­firði af fyrirtæki í eigu deildar­stjóra þess og eiginkonu hans. Kastljós greindi frá þessu í ítarlegri umfjöllun í kvöld.

Mörg hundruð milljona viðskipti við bróður deildarstjóra


Kastljós skoð­aði nokkur til­felli þar sem við­skipti Vega­gerð­ar­innar, ein stærsta stofnun rík­is­ins, þóttu orka tví­mælis. Fyrsta til­fellið voru við­skipti við fyr­ir­tækin Samrás og Fjarorku, sem Vega­gerðin hefur átt í við­skiptum við fyrir um 400 millj­ónir króna á und­an­förnum árum. Samrás fæst við verk­fræði­ráð­gjöf og Fjarorka selur tækja­búnað. Ekkert þeirra verka sem fyr­ir­tækin tvö unnu fyrir Vega­gerð­ina voru boðin út og sam­kvæmt Kast­ljósi eru engin eru til staðar sem benda til að óform­legar verðkann­anir liggi að baki neinu þeirra.

vegagerð
vega­gerð

Guðlaugur Jónasson er eini eigandi Samrásar og á helming í Fjarorku. Hann er bróðir Nicolai Jónassonar, deildar­stjóra þjónustu­deildar Vega­gerðarinnar. Viðskipti Vega­gerðarinnar við Samrás og Fjarorku hafa öll farið fram í gegnum deildina sem Nicolai stýrir.

Í Kastljósi kom fram að samkvæmt lögum um opinber innkaup eigi að bjóða út öll vörukaup yfir 11,5 milljónum króna. Sum viðskiptin við fyrirtæki Guðlaugs eru langt yfir þeim mörkum. Auk þess leggja stjórnsýslulög og siða­reglur Vega­gerðarinnar bann við því að opinberir starfs­menn komi að viðskiptum við ættingja sína.

Fyrrum starfsmenn og eiginkonur


Annað til­fellið snýr að kaupum Vega­gerð­ar­innar á verk­taka­þjón­ustu af fyr­ir­tæk­inu Hnjóti hf. Það fyr­ir­tæki var lengi í eigu Magnúsar Guð­bjarts­sonar, sem er fyrrum starfs­maður Vega­gerð­ar­innar. Hann er ekki lengur skráður eig­andi Hnjóts en kemur fram sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins í sam­skiptum þess við Vega­gerð­ina. Í umfjöllun Kast­ljóss kom fram að Magnús og þrjú fyr­ir­tæki honum tengd, meðal ann­ars Hnjótur, hafi fengið alls 205 millj­ónir króna fyrir ýmis verk sem unnin voru að beiðni fyrrum sam­starfs­manna hans á und­an­förnum árum.

Þriðja tilfellið snýst um kaup útibús Vega­gerðarinnar í Hafnar­firði á ræstingar­þjónustu af fyrirtæki í eigu Bjarna Stef­ánssonar og eiginkonu hans fyrir alls um tíu milljónir króna á undan­förnum árum. Bjarni er deildar­stjóri útibúsins. Hann hafði sjálfur umsjón með kaupum á ræstingar­þjónustunni og stýrði meðal annars útboði á þjónustunni þar sem mótbjóðandi sendi tilboð sitt meðal annars beint á Bjarna.

Í Kastljósi sagði að samkvæmt gögnum sem það hefur undir höndunum um þessi tilfelli sé „erfitt að sjá að viðskiptin samrýmist þeim reglum sem Vega­gerðin hefur sjálf sett sér, auk þess sem eðlilegt er að spurt sé hvort þessi viðskipti, sem samtals nema á sjöunda hundrað milljóna króna, samræmist lögum“.

Í viðtali við Kastljós sagði Vegamála­stjóri að vel geti verið að lög hafi verið brotin í viðskiptunum sem voru til umfjöllunar og að fullt tilefni sé til að fara betur yfir þau.

Vega­gerðin hefur skipað starfshóp til að fara yfir viðskipti Vega­gerðarinnar við ofan­greinda aðila í kjölfar viðtalsins sem Kastljós tók við Vegamála­stjóra . Viðskiptum ræstinga­fyrir­tækisins sem Bjarni Stef­ánsson og eiginkona hans eiga við Vega­gerðina hefur verið hætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár