Húsleit hjá Telenor vegna gruns um mannréttindabrot í Mjanmar

Norska fjarskipta­félagið Telenor er til rann­sóknar vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni og mögulegra brota á refsi­að­gerðum í tengslum við starfsemi og sölu dóttur­félags fyrir­tækisins í Mjanmar. Telenor er að stærstum hluta í eigu norska ríkisins.

Stórt
Stórt Fólk beið í röð eftir að kaupa SIM-kort þegar Telenor Myanmar hóf starf­semi í land­inu árið 2014. Félagið var komið með meira en 18 millj­ónir við­skipta­vina árið 2021. Mynd: Ye Aung Thu / AFP

Norsk yfirvöld greindu frá því í dag að gerð hefði verið húsleit í höfuð­stöðvum norska fjarskipta­fyrir­tækisins Telenor. Félagið er grunað um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni í Mjanmar.

Viðskipta­vinir fyrr­verandi dóttur­félags Telenor í Mjanmar, Telenor Myanmar (TML), höfðuðu mál gegn fyrir­tækinu fyrr á þessu ári vegna þess að viðkvæmum persónu­upplýsingum þeirra hefði verið deilt með herforingja­stjórn landsins.

Þeir halda því fram að upplýsingarnar hafi verið notaðar til að bera kennsl á, handtaka og sækja til saka lýðræðis­sinna sem grunaðir voru um að standa gegn hernum í Mjanmar.

Norska rannsóknar­lögreglan Kripos og norska öryggis­lögreglan PST hafa hafið tvær aðskildar rann­sóknir á Telenor, að sögn lögreglu.

Kripos rannsakar Telenor vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni á tíma­bilinu frá 1. febrúar 2021 til 25. mars 2022.

Tímabilið nær frá þeim degi þegar herinn framdi valdarán gegn ríkis­stjórn Aung San Suu Kyi í Mjanmar og þar …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár