Fjármálaráðuneytið: Hátt verðlag stafar af sterkri stöðu þjóðarbúsins og háu raungengi

Ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar bregst við umræðu um að verð­lag á Íslandi hafi verið það hæsta í Evrópu árið 2017. Bent er á að styrk­ing krón­unnar hefur aukið kaup­mátt heim­ila.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Pressphotos

Hátt raun­gengi og sterk staða þjóð­ar­bús­ins er meg­in­á­stæða þess að verð­lag á Íslandi er hátt í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­ríki. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu þar sem brugð­ist er við umræðu um mat­væla­verð og verð­lag á Íslandi. 

„Laun á Íslandi hækk­uðu um 80% í evrum talið á tíma­bil­inu 2013-2017 sé tekið mið af tölum Eurostat um launa­kostnað á vinnu­stund innan við­skipta­hag­kerf­is­ins. Styrking krón­unnar olli miklum vexti í kaup­mætti í erlendri mynt á sama tíma og laun hækk­uðu mikið. Hvergi í Evrópu hækk­uðu laun jafn mikið á þennan mæli­kvarða á und­an­förnum árum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samkvæmt nið­ur­stöðum nýrrar verð­könn­unar Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á mat­vöru er vöru­karfan í Reykja­vík tals­vert dýr­ari en í höf­uð­borgum hinna Norð­ur­land­anna. Þá hefur vakið athygli að sam­kvæmt upp­færðri töl­fræði Eurostat var verð­lag á Íslandi það hæsta í Evrópu árið 2017. Fjár­mála­ráðu­neytið bendir á að þarna sé verð­lag í krónum umreiknað í verð­lag í evrum. Því hafi geng­is­breyt­ingar mikil áhrif á sam­an­burð­inn. 

„Þegar krónan styrk­ist verða vörur sem verð­lagðar eru í íslenskum krónum dýr­ari í evrum talið og því hækkar verð­lag sjálf­krafa á þennan sam­ræmda mæli­kvarða,“ segir í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Styrking krón­unnar á árunum 2013-2017 hefur aftur á móti stuðlað að lægra vöru­verði hér á landi í íslenskum krónum og þannig aukið kaup­mátt heim­il­anna. Afnám tolla og vöru­gjalda hefur stuðlað enn frekar að lægra vöru­verði í mik­il­vægum vöru­flokkum eins og kom­ist er að í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar.“

Ráðu­neytið birtir súlu­rit sem sýnir að hvergi í Evrópu hafi laun hækkað meira í evrum talið en á Íslandi.

„Sterkt raun­gengi krón­unnar í sögu­legu sam­hengi end­ur­speglar ekki síst við­snún­ing í við­skipta­jöfn­uði á und­an­förnum árum og sterka stöðu þjóð­ar­bús­ins. Laun hafa enda hækkað meira en verð­lag eins og sést á með­fylgj­andi mynd. Árið 2017 var launa­kostn­aður á hverja vinnu­stund í evrum talið 74% hærri á Íslandi en að með­al­tali í löndum ESB.“

Þá birtir ráðu­neytið línu­rit sem sýnir að launa­vísi­talan hefur hækkað lít­il­lega umfram vísi­tölu neyslu­verðs á Íslandi. 

Í þessu sam­hengi er rétt að hafa í huga að neyslu­mynstur er breyti­legt frá einu heim­ili til ann­ars. Til að mynda vegur hús­næð­is­kostn­aður mun þyngra í neyslukörfu lág­launa­fólks og fólks á leigu­mark­aði en ann­arra hópa og hefur þannig hækkun fast­eigna­verðs bitnað meira á kaup­mætti þeirra sem eru neðar í tekju­stig­anum en hinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár