Sjálfstæðisflokkur gerði kröfu um að Lilja stýrði efnahags- og viðskiptanefnd

Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, sat í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum þar til fyrir skemmstu.
Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sat í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum þar til fyrir skemmstu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það skil­yrði fylgdi því að stjórn­ar­and­staðan fengi for­mennsku í þremur nefndum að Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, yrði for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar. Skil­yrðið var sett fram af Sjálf­stæð­is­flokknum. Þetta stað­festir Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, í Frétta­blað­inu í dag.

Stjórn­ar­and­staðan gat ekki sætt sig við þetta skil­yrði Sjálf­stæð­is­flokks og fannst óeðli­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætl­aði sér að velja hvaða ein­stak­lingar úr hvaða flokkum stjórn­ar­and­stöðu ættu að stýra þeim fasta­nefndum þar sem for­mennska átti að falla henni í skaut. Við­mæl­endur Kjarnans innan stjórn­ar­and­stöð­unnar eru sam­mála um að þrír stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir; Vinstri græn, Píratar og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hefðu átt að stýra einni nefnd hver ef sam­komu­lag hefði náðst við stjórn­ar­flokk­anna. Það væri hins vegar stjórn­ar­and­stöð­unnar að koma sér saman hvaða flokkur myndi fá for­mennsku í hvaða nefnd. Í ljósi þess að for­mennska í efna­hags- og við­skipta­nefnd væri skil­yrt við að Lilja tæki hana að sér þá taldi stjórn­ar­and­staðan ekki mögu­legt að semja. Það væri ólýð­ræð­is­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi að velja flokka og ein­stak­linga úr stjórn­ar­and­stöð­unni sem honum hugn­að­ist betur en aðrir til að stýra ákveðnum nefndum. Hvorki Viðreisn né Björt fram­tíð settu skil­yrði um að ákveðnir ein­stak­lingar innan stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ættu að stýra þeim nefndum sem í boði voru.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra gagn­rýndi stjórn­ar­and­stöð­una harð­lega í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær fyrir að gang­ast ekki við skil­yrðum Sjálf­stæð­is­manna og fá í kjöl­farið for­mennsku í vel­ferð­ar­nefnd, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd. Bjarni spurði hvort það geti verið að Píratar hafi ekki geta unnt Fram­sókn­ar­flokknum að leiða efna­hags- og við­skipta­nefnd og hafi „frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekk­ert boð­ið?“.

Stjórn­ar­flokk­arnir munu því að öllum lík­indum verða með for­menn í öllum fasta­nefnd­unum átta. Kjöri for­manna þeirra lýkur í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár