Bjarni spyr hvort Píratar hafi ekki getað unnt Framsókn nefndarformennsku

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra spyr hvort það geti verið að Píratar hafi ekki geta unnt Fram­sókn­ar­flokknum að leiða efna­hags- og við­skipta­nefnd og hafi „frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekk­ert boðið?“. Þess í stað hafi ekki náðst sam­komu­lag um að stjórn­ar­and­staðan fengi for­mennsku í þremur af átta fasta­nefndum Alþingis, líkt og stjórn­ar­flokk­arnir þrír hefðu sam­þykkt. Stjórn­ar­flokk­arnir munu að öllum lík­indum verða með for­menn í öllum fasta­nefnd­unum átta.

Bjarni segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að komið hafi fram ein­dregin vilji stjórn­ar­and­stöðu um að fá for­mennsku í þremur nefndum, í stað tveggja eins og á síð­asta kjör­tíma­bili. Þá hafði stjórn­ar­and­staðan for­mennsku í vel­ferð­ar­nefnd og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og stóð sú for­mennska áfram til boða. Til stóð að tveir stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, Vinstri græn og Píratar, myndu fá for­mennsku í þeim nefndum. Bjarni segir að kæmi til þess að samið yrði um þriðju for­mennsk­una þá yrði það til að tryggja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn færi fyrir einni nefnd, enda væri hann þriðji stærsti flokk­ur­inn. „Þessi sam­töl þró­uð­ust með þeim hætti að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sótt­ist eftir eftir for­mennsku í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Af hálfu stjórn­ar­flokk­anna var það sam­þykkt. Með þessu höfðu stjórn­ar­flokk­arnir fall­ist á að fela stjórn­ar­and­stöðu for­ystu í fleiri nefndum en dæmi eru um.“

[adspot]

Fyrr í dag voru sagðar af því fréttir að stjórn­ar­and­staðan hafi sagt stjórn­ar­flokk­anna hafa viljað skipta sér að því hvaða ein­stak­lingar myndu stýra nefndum sem hún fengi for­mennsku í. Það vildi stjórn­ar­and­staðan ekki sætta sig við og því muni hún hvorki taka við for­mennsku né vara­for­mennsku í nefndum. Bjarni segir að þar sé stjórn­ar­and­staðan að snúa öllu á haust á þann veg að þar sem sam­komu­lagið hafi snú­ist um að fall­ast á bón Fram­sókn­ar­flokks­ins um for­ystu í efna­hags- og við­skipta­nefnd þá hafi stjórn­ar­flokk­arnir viljað hafa áhrif á val stjórn­ar­and­stöð­unnar. „Því er slegið upp sem stað­reynd í fyr­ir­sögn fréttar á RÚV. Það væri nær að skrifa frétt um að stjórn­ar­and­staðan hafi gefið frá sér for­mennsku í þremur nefndum því hún gat ekki komið sér saman um hvað ætti að falla í hvers hlut. Getur verið að Píratar hafi ekki getað unnt Fram­sókn­ar­flokknum þess að leiða mik­il­væga nefnd og hafi frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekk­ert boðið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár