Stjórnarflokkarnir líklega með formennsku í öllum fastanefndum

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi munu ekki fá nefnd­ar­for­mennsku í tveimur nefndum ef fram fer sem horfir. Líklega verða fjórar konur for­menn fasta­nefnda og fjórir karlar, allir úr stjórn­ar­lið­inu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er ritari Sjálfstæðisflokksins. Hún kemur sterklega til greina sem formaður allsherjar- og menntamálanefndar.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún kemur sterk­lega til greina sem for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn­ar­flokk­arnir munu mögu­lega fara með for­mennsku í öllum átta fasta­nefndum þings­ins. Þetta segir Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, við mbl.is. Áður var talið að stjórn­ar­and­staðan myndi fá for­mennsku í tveimur nefndum líkt og hefð hefur skap­ast fyrir á und­an­förnum árum. Á síð­asta kjör­tíma­bili var stjórn­ar­and­staðan til að mynda með for­mennsku í bæði vel­ferð­ar­nefnd og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, sagði við sama miðil að þetta væru mörg skref aftur í tím­ann og að stjórn­ar­flokk­arnir hafi boðið ákveðnum ein­stak­lingum í stjórn­ar­and­stöð­unni for­mennsku. Það væri bæði óásætt­an­legt og ólýð­ræð­is­legt.

Ekki náð­ist sam­komu­lag milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um for­mennsku í nefndir í aðdrag­anda þess að þing var sett, en stefnuræða for­sæt­is­ráð­herra var flutt í gær. Stjórn­ar­and­staðan kall­aði eftir því að for­menn nefnda yrðu skip­aðir í sam­ræmi við þing­styrk, en stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa ein­ungis eins manns meiri­hluta og 46,7 pró­sent atkvæða á bak við sig. Við það hafa stjórn­ar­flokk­arnir ekki sætt sig og því gæti vel farið svo að allir for­menn­irnir verði úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Í dag voru fjórir nefnd­ar­for­menn kjörnir og hinir fjórir verða kjörnir á morgun. Þegar sátt náð­ist um skipan rík­is­stjórnar bár­ust fregnir af því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætl­aði sér fimm for­manns­stóla í nefndum, Viðreisn fengi einn en stjórn­ar­and­staðan tvo. Þrír Sjálf­stæð­is­menn voru skip­aðir for­menn nefnda í dag. Óli Björn Kárason verður for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, Haraldur Bene­dikts­son verður for­maður fjár­laga­nefndar og Val­gerður Gunn­ars­dóttir for­maður umhverf­is­nefndar. Það vakti hins vegar athygli að Nichole Leigh Mosty, annar tveggja þing­manna Bjartrar fram­tíðar sem sett­ist ekki í ráð­herra­stól, var kjörin for­maður vel­ferð­ar­nefndar. Það þótti athygl­is­vert bæði vegna þess að það er nefnd sem lík­legt þótti að stjórn­ar­and­stöð­unni stæði for­mennska í til boða – sér­stak­lega þar sem áhersla hefur verið lögð á breiða sam­stöðu í vel­ferð­ar­málum á kjör­tíma­bil­inu – en líka vegna þess að ekki var búist við því að Björt fram­tíð fengi for­mennsku í neinni fasta­nefnd.

Suðurkjördæmi fær ekki kröfur sínar uppfylltar

Á morgun verður síðan kos­inn for­maður í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, utan­rík­is­mála­nefnd, atvinnu­vega­nefnd og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Mikið hefur verið þrýst á að Páll Magn­ús­son, og Ásmundur Frið­riks­son, fái for­mennsku í sitt hvorri nefnd­inni. Páll gagn­rýndi ráð­herra­val Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra opin­ber­lega fyrr í mán­uð­inum og sagði að það hlyti að vera mis­tök sem yrði leið­rétt. Áður hafði Páll ekki greitt atkvæði með ráð­herra­skip­an­inni. Ástæðan var sú að Páll taldi að hann sjálfur, sem odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi, hefði átt að fá ráð­herra­emb­ætti í ljósi sterkrar stöðu flokks­ins þar.

Eini þing­maður kjör­dæm­is­ins sem fékk lyk­il­stöðu í rík­is­stjórn­inni var hins vegna Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, sem setið hafði í fjórða sæti á fram­boðs­lista flokks­ins eftir að hafa verið færð upp um eitt sæti þegar Ragn­heiður Elín Árna­dóttir ákvað að bjóða sig ekki fram. Karl­arnir þrír sem sátu fyrir ofan Unni Brá töldu gróf­lega fram hjá sér gengið. Eitt sterkasta vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi eru Vest­manna­eyjar, þangað sem rætur bæði Páls og Ásmundar, sem er annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í kjör­dæm­inu, liggja. Sjálf­stæð­is­menn í Vest­manna­eyjum sendu frá sér ályktun um miðjan jan­úar þar sem þeir sögðu að vilji kjós­enda flokks­ins í kjör­dæm­inu hefði verið huns­aður og að horft hefði verið fram hjá lýð­ræð­is­legri nið­ur­stöðu fjöl­menns próf­kjörs í Suð­ur­kjör­dæmi. Síðan sagði í álykt­un­inni: „Í ljósi þess hversu öfl­ugt starf er unnið undir merkjum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu er sann­gjarnt og eðli­legt að þing­mönnum í for­ystu flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi séu tryggð for­mennska í veiga­miklum nefndum Alþingis.“

Eftir for­manns­kjör dags­ins er þó ljóst er þó að Páll og Ásmundur fá ekki báðir for­mennsku í nefndum. Ástæðan er sú að þeir sitja bara í einni þeirra nefnda sem á eftir að kjósa for­mann, atvinnu­vega­nefnd. Annar hvor þeirra mun því að öllum lík­indum taka við for­mennsku hennar.

Áslaug Arna og Jóna Sólveig gera sterkt tilkall

Þá standa eftir þrjár nefndir. Líklegt verður að telj­ast að Brynjar Níelsson, frá­far­andi vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, muni gera til­kall til þess að leiða þá nefnd verði það að veru­leika að stjórn­ar­and­staðan taki ekki við for­mennsku í neinni nefnd. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sat í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, verður að telj­ast lík­leg til að taka við for­mennsku í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Það þýðir að Viðreisn mun fá for­mennsku í utan­rík­is­mála­nefnd og Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, vara­for­maður Við­reisnar, nær örugg um að fá það emb­ætti.

Verði það nið­ur­staðan þá verður hlut­fall kynj­anna í nefnd­ar­for­mennsku jafnt. Þar munu sitja fjórir karlar og fjórar konur. Í rík­is­stjórn­inni sitja hins vegar sjö karlar og fjórar konur auk þess sem kona gegnir emb­ætti for­seta Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár