Egyptar banna fréttaumfjöllun um ferðamennina sem voru drepnir fyrir slysni

Æðsti saksóknari í Egypta­landi hefur formlega lagt bann á alla umfjöllun fjölmiðla um dauðsföll mexíkóskra ferða­manna og leið­sögumanna um síðustu helgi. Bannið var sett í kjölfar loforða utan­ríkis­ráðherra landsins um að atburðurinn fái ítarlega og gagnsæja rannsókn. Gagn­rýnendur telja að bannið geti verið partur af tilraunum stjórn­valda í Egypta­landi til að hylma yfir það sem raun­verulega gerðist.

Síðastliðna helgi drápu öryggis­sveitir átta ferðamenn frá Mexíkó og fjóra egypska leið­sögumenn í loft­árásum. Öryggis­sveitirnar töldu sig vera að ráðast á hóp hryðju­verkamanna í eyði­mörkinni í vestur­hluta landsins.

Egyptar báðu stjórn­völd í Mexíkó afsökunar á dauðsföllum ferða­mannanna. Samkvæmt frétt New York Times um framvindu málsins þá flaug utan­ríkis­ráðherra Mexíkó til Egypta­lands fyrr í þessari viku til að grennslast frekar um atburða­rásina. Í kjölfarið var gefin út sameiginleg yfir­lýsing þar sem ítarlegri rannsókn var lofað af hálfu egypskra stjórn­valda - og öll frétta­umfjöllun um málið bönnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár