Egypskar öryggissveitir drápu ferðamenn fyrir slysni

Öryggis­sveitir Egypta drápu fyrir mistök tólf ferðamenn í gær, í aðgerðum sem áttu að beinast gegn hryðju­verkamönnum. Tólf manns til viðbótar slösuðust en lifðu af þegar öryggis­sveitirnar réðust að bílum ferða­mannanna.

Í tilkynningu frá stjórn­völdum í Egypta­landi segir að ferða­mennirnir hafi verið á svæði þar sem umferð er bönnuð. Talið var að á ferðinni væri hópur hryðju­verkamanna og var ákveðið að ráðast á hann úr lofti. Ferðamennnirnir hafi ekki látið vita af ferðum sínum.

Í umfjöllun BBC um málið eru skýringar egypskra stjórn­valda dregnar í efa og hefur frétta­stofan eftir heimildar­manni að ferða­mennirnir hafi upplýst um ferða­áætlanir sínar og hafi um tíma haft lögreglu­fylgd.

Tveir hinna látnu og minnst fimm hinna slösuðu eru ferðamenn frá Mexíkó. Forseti landsins, Enrique Pena Nieto, tjáði sig um málið á samfélags­miðlum þar sem hann fordæmdi árás Egypta. Hann kallar eftir ítarlegri rannsókn atburðunum.

Ferða­mennirnir voru drepnir í eyði­mörkinni í vestur­hluta Egypta­lands. Öryggis­sveitir Egypta hafa þar barist gegn víga­mönnum íslamista og töldu bíla­lestina á þeirra vegum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár