Egyptar biðja stjórnvöld í Mexíkó afsökunar á dauðsföllum

Stjórn­völd í Egypta­landi hafa formlega beðið stjórn­völd í Mexíkó afsökunar á mistökum sem ollu því að árás var gerð á hóp ferða­manna frá Mexíkó með þeim afleiðingum að tólf létust og eru tíu alvarlega slösuð á sjúkra­húsi. Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC kom forsætis­ráðherra Egypta­lands, Ibrahim Mahlab, formlegri afsökunar­beiðni til sendi­herra Mexíkó í Kaíró, höfuðborg Egypta­lands.

Að sögn stjórn­valda í Egypta­landi var hópurinn þó að ferðast um svæði í eyðimörk sem sé strang­lega bannað að ferðast um, en þar hefur stjórnarher Egypta­lands barist við uppreisnar­hópa í blóðugum bardögum.

Árásin kom eins og þruma úr heiðskíru lofti en herinn skaut á fjóra bíla sem fólkið var í, þegar það var að keyra um Western eyði­mörkina. Aðstand­endur hópsins hafa fullyrt að þeir hafi haft leyfi til að ferðast um svæðið, en því eru stjórn­völd í Egypta­landi ekki sammála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár