Jarðvarmi vill ganga inn í kaup á hlut í HS Orku

Jarðvarmi, félag í eigu fjórtán lífeyris­sjóða, vill nýta kauprétt og ganga inn í 37 milljarða króna viðskipti á 54 prósenta hlut í HS Orku. Verði af kaupnunum mun félagið gera það í samstarfi við breskan fjár­festingar­sjóð.

Jarðvarmi, félag í eigu fjórtán lífeyris­sjóða, hefur áform um að nýta sér kauprétt sinn og ganga inn í kaup á 54 prósenta hlut í HS Orku fyrir um 37 milljarða. Kaup félagsins yrðu gerð í samstarfi við breska fjár­festinga­fyrirtækið Ancala Partners. Gangi kaupin eftir verður eignar­hlutur Jarðvarma og Ancala jafn stór eftir viðskiptin, þannig að hvor aðili um sig fari með rúmlega 43 prósenta hlut í HS Orku. Frá þessu greint í Markaðinum, fylgiriti Frétta­blaðsins, í dag. .

Greiða atkvæði um kaup Jarðvarma í næstu viku

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að fjár­fest­ing­ar­sjóður í stýr­ingu hjá Macquarie Infrastructure and Real Assets (MIRA) hafi und­ir­ritað kaup­samn­ing á 53,9 pró­sent hlut Magma Energy Sweden í íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu HS Orku á 304,8 millj­ónir dala, eða um 37 millj­arða króna. Miðað við verð­miðann sem er á sölunni til MIRA þá er heildar­virði HS Orku nú tæplega 69 milljarðar króna.

Gangi kaup MIRA eftir mun sá sjóður eiga 53,9 prósent hlut í HS Orku, Jarðvarmi á 33,4 prósent hlut og félag í eigu Bretans Edmund Truell,sem lengi hefur unnið að því að koma sæstreng milli Íslands og Bretlands, á 12,7 prósent.

Í Markaðinum í dag er greint frá því að samkvæmt hluthafa­samkomulagi HS Orku stendur Jarðvarma hins vegar til boða að nýta sér kauprétt sinn og ganga inn í viðskiptin. Boðað hefur verið til hluthafa­fundar hjá Jarðvarma þann 9. apríl næst­komandi. Þá muni hluthafar greiða atkvæði um þá tillögu stjórnar að félagið nýti kaup­réttinn og kaupi meirihlut í HS Orku í samstarfi við Ancala Partnersns.

Samkvæmt heimildum Markaðarins er gert ráð fyrir því að Jarðvarmi bæti við sig um tíu prósenta hlut en að afgangurinn , eða um 43 prósenta hlutur, verði keyptur af Ancala. Eignar­hlutur Jarðvarma og Ancala yrði þá jafn stór, hvor aðili um sig færi þá með rúmlega 43 prósenta hlut í HS Orku.

Áætlaður EBITDA-hagnaður 3,8 milljarðar á árinu 2019

HS Orka er þriðji stærsti raforku­fram­leiðandi landsins og eina íslenska orku­­fyr­ir­tækið sem er í eigu einka­að­ila. Það á og rekur orku­ver í Svarts­engi og á Reykja­­­nesi auk þess sem virkj­ana­­­kostir sem fyr­ir­tækið á eru í nýt­ing­­­ar­­­flokki ramma­á­ætl­­­un­­­ar.

Í árslok 2017 átti HS Orka eigið fé upp á 35,5 milljarða króna og skilaði hagnaði um á 4,6 milljarða króna. Þar voru eignir HS Orku metnar á 48,4 milljarða króna en flestir sérfræðingar eru sammála um að þær séu verulega vanmetnar. Í þeim sama ársreikningi var nefnilega 30 prósent eignar­hlutur fyrir­tækisins í Bláa lóninu bókfærður á 2,7 milljarð króna, sem er líkast til umtals­vert undir markaðs­virði í ljósi þess að boði upp á ellefu milljarða króna í hlutinn var hafnað fyrir tveimur árum og að Bláa lónið var verðlagt á um 50 milljarða króna alls í viðskiptum sem áttu sér stað tengt því í lok árs í fyrra.

Í fjárfesta­kynningu sem notast var við vegna sölu­ferlisins sem lauk með kaupum MIRA, og bar nafnið „Project Thor“, sagði að áætlaður EBITDA-hagnaður HS Orku, hagnaður fyrir fjármagns­liði, afskriftir og skatta, á árinu 2019 væri 31 milljón dala, eða tæplega 3,8 milljarðar króna. Þar er hins vegar einnig gert ráð fyrir að EBITDA-hagnaður HS Orku muni nánast tvöfaldast á árinu 2023 og verða um 60 milljónir dala, eða um 7,3 milljarðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár