Virði HS Orku hefur tvöfaldast frá því að Magma keypti

Eina orku­fyr­ir­tækið á Íslandi sem er í eigu einka­að­ila hefur skipt um meiri­hluta­eig­endur. Fjár­fest­ing hins kanadíska Ross Beaty í HS Orku virð­ist hafa marg­borgað sig en hann greiddi um 33 millj­arðar króna fyrir nær allt hlutafé þess á árunum 2009 og 2010.

Fjár­fest­ing­ar­sjóður í stýr­ingu hjá Macquarie Infrastructure and Real Assets (MIRA) hefur und­ir­ritað kaup­samn­ing á 53,9 pró­sent hlut Magma Energy Sweden í íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu HS Orku á 304,8 millj­ónir dala, eða um 37 millj­arða króna.

Gangi kaupin eftir líkt og við er búist, lýkur ára­tuga­langri, og um tíma afar umdeildri, aðkomu Kanada­manns­ins Ross Beaty og fyr­ir­tækja sem hann hefur komið að að þessu þriðja stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins.

Beaty, sem hefur verið stjórn­ar­for­maður HS Orku árum saman, leiddi upp­kaup sænska skúffu­fyr­ir­tæk­is­ins Magma Energy Sweden á hlutum í HS Orku á árunum 2009 og 2010. Þrátt fyrir mik­inn póli­tískan mót­þróa, og umræður um hvort ríkið gæti gengið inn í kaupin eða komið í veg fyrir þau á annan hátt, þá náði hann að kaupa alls 98,53 pró­sent hlut í orku­fyr­ir­tæk­inu á alls um 33 millj­arða króna.

Miðað við verð­mið­ann sem er á söl­unni til MIRA þá er heild­ar­virði HS Orku nú tæp­lega 69 millj­arðar króna. Fyr­ir­tækið hefur því reynst ágætis fjár­fest­ing fyrir þá sem keyptu það á sínum tíma.

Ákveðið að einkavæða orkufyrirtæki

Í aðdrag­anda banka­hruns­ins fór af stað veg­ferð sem í fólst að einka­væða hluta af íslensku orku­fyr­ir­tækj­unum. Eitt þeirra var Hita­veita Suð­ur­nesja, sem síðar var skipt upp í HS Orku og HS Veitur, en var á þeim tíma að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum.

Í mars 2007 ákvað íslenska ríkið að aug­lýsa 15,2 pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu til sölu. Öðrum orku­fyr­ir­tækjum á Íslandi, sem voru líka í opin­berri eigu, var meinað að bjóða í hann.

Mánuði síðar lá fyrir að fjögur til­boð höfðu borist í hlut­inn. Lang­hæsta til­boðið var frá félagi sem kall­að­ist Geysi Green Energy (GGE), og bauð 7,6 millj­arða króna, um 40 pró­sent hærra en næsti bjóð­andi. Geysir Green Energy var orku­út­rás­ar­fyr­ir­tæki sem þá hafði nýverið verið stofnað af FL Group, Glitni og Mannviti. Aðrir eig­endur Hita­veit­unnar áttu for­kaups­rétt sem þeir ákváðu að nýta sér í þeim til­gangi að reyna að halda fyr­ir­tæk­inu í opin­berri eigu, við litlar vin­sældir bjóð­enda.

Þann 11. júlí 2007 náð­ist mála­miðlun í bar­átt­unni um Hita­veit­una með gerð hlut­hafa­sam­komu­lags. Það fól í sér að Reykja­nes­bær (34,7 pró­sent), Orku­veita Reykja­víkur (16,5 pró­sent), Hafn­ar­fjörður (15,4 pró­sent) og Geysir Green Energy (32 pró­sent) yrðu eig­endur að Hita­veitu Suð­ur­nesja. Hafna­fjörður mátti selja hlut sinn til Orku­veitu Reykja­víkur, sem bær­inn ákvað síðar að gera. Minni sveita­fé­lög á Suð­ur­nesjum áttu síðan saman um eitt pró­sent hlut.

Í októ­ber 2007 var til­kynnt um sam­runa Geysis Green Energy og Reykja­vík Energy Invest (REI), útrás­ar­arms Orku­veitu Reykja­víkur. Við það átti hlutur Orku­veit­unnar og Geysis Green Energy í Hita­veitu Suð­ur­nesja að renna að renna inn í REI. Með hlut Hafn­ar­fjarðar, sem Orku­veitan mátti kaupa, hefði hið sam­ein­aða REI átt 64 pró­sent í Hita­veitu Suð­ur­nesja. REI-sam­run­inn gekk hins vegar til baka með látum líkt og frægt er orðið. Í des­em­ber 2007 ákvað Hafn­ar­fjörður svo að selja nán­ast allan eign­ar­hlut sinn í Hita­veitu Suð­ur­nesja til Orku­veitu Reykja­víkur.

Bláa lónið með sem skiptimynt

Í byrjun árs 2008 höfðu níu af þeim tíu sveit­ar­fé­lögum sem áttu í Hita­veitu Suð­ur­nesja ári áður selt sig út úr fyr­ir­tæk­inu eða áttu undir eitt pró­sent eign­ar­hlut. Þessi blokk hafði átt 84,8 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu í byrjun árs 2007. Eina sveit­ar­fé­lagið sem enn átti umtals­verðan hlut var Reykja­nes­bær með 34,74 pró­sent hlut.

Í apríl 2008 úrskurð­aði Sam­keppn­is­eft­ir­litið hins vegar að Orku­veita Reykja­víkur mætti ein­ungis eiga þrjú pró­sent hlut í Hita­veitu Suð­ur­nesja, og fyr­ir­tækið reyndi að skila hlut sem keyptur var af Hafn­ar­firði, sem vildi ekki sætta sig við þá nið­ur­stöðu. Málið var síðar leyst fyrir dóm­stólum.

Þann 1. des­em­ber 2008 var ákveðið að skipta Hita­veitu Suð­ur­nesja upp í tvö fyr­ir­tækið, Orku og Veitur. Á meðal eigna sem fóru til HS Orku við upp­skipt­ing­una var eign­ar­hlutur í Bláa lón­inu, en Hita­veitan hefur verið stór hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu frá því að upp­bygg­ing nýrrar aðstöðu hófst þar á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Eign­ar­hlutur HS Orku í Bláa lón­inu nemur í dag um 30 pró­sentum.

Eign­ar­hlut­ur­inn í Bláa lón­inu var bók­færður á 217,8 millj­ónir króna í lok árs 2008, skömmu eftir að upp­skipt­ing Hita­veit­unnar hafði gengið í gegn. Hann var, með öðrum orðum, algjört auka­at­riði í bók­haldi hins nýja fyr­ir­tækis HS Orku. Árið síðar hafði bók­fært virði eign­ar­hlut­ar­ins verið hækkað í 846 millj­ónir króna. Í lok árs 2017 var búið að færa virði hlut­ar­ins í bókum HS Orku upp í 2,7 millj­arða króna. Sumarið 2017 hafn­aði fyr­ir­tækið ell­efu millj­arða króna til­boði í hann.

Magma mætir

Á fyrri hluta árs­ins 2009 áttu sér stað ýmsar vær­ingar innan HS Orku. Orku­veita Reykja­víkur vildi selja sinn hlut en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur skikk­aði fyr­ir­tækið skömmu síðar til að standa við kaup á hlut Hafn­ar­fjarðar í HS Orku sem það hafði skuld­bundið sig til að kaupa. Þegar þarna var komið var staðan því þannig að Orku­veita Reykja­víkur, Hafn­ar­fjörður og Reykja­nes­bær, sem sam­tals áttu sam­tals 67 pró­sent hlut í HS Orku, vildu öll selja sinn hlut.


Í maí­mán­uði var greint frá því í fjöl­miðlum að erlendir fjár­festar hefðu áhuga á að kaupa hlut í Geysi Green Energy, sem átti 32 pró­sent í HS Orku. Síðar kom í ljós að umræddur fjár­festir var fyr­ir­tækið Magma Energy frá Kanada. 25. júní 2009 voru gerð drög að sam­komu­lagi milli Reykja­nes­bæjar og Geysis Green Energy um sölu bæj­ar­ins á 34,7 pró­sent hlut hans í HS Orku. Tveimur dögum síðar var greint frá því að Magma ætl­aði sér að kaupa hlut í HS Orku af Geysis Green Energy og að fyr­ir­tækið hefði áhuga á eign­ar­hlut Orku­veitu Reykja­víkur líka, sem þá var í sölu­ferli.

Þann 14. júlí 2009 seldi Reykja­nes­bær allan eign­ar­hlut sinn í HS Orku til Geysis Green á 13 millj­arða króna og nokkrum dögum síðar keypti Magna 10,8 pró­sent hlut í HS Orku af Geysi Green. Um miðjan ágúst hóf stjórn Orku­veitu Reykja­víkur við­ræður við Magma um að selja fyr­ir­tæk­inu 32,2 pró­sent hlut sinn í HS Orku. Á sama tíma var til­kynnt að Sand­gerði ætli að selja sinn hlut í HS Orku til Magma.

Þáver­andi stjórn­völdum hugn­að­ist þessi þróun ekki og í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem þá var stýrt af Stein­grími J. Sig­fús­syni, voru uppi hug­myndir um að íslenska ríkið, Reykja­vík­ur­borg og Rarik myndu ganga inn í við­skiptin til að tryggja áfram­hald­andi opin­bert eign­ar­hald. Í lok ágúst var greint frá því að ríkið, sveit­ar­fé­lög (m.a. Grinda­vík) og líf­eyr­is­sjóðir myndi reyna að eign­ast 55 pró­sent hlut í HS Orku. Ekkert varð af áformunum eftir að líf­eyr­is­sjóð­irnir neit­uðu að taka þátt í kaup­unum. Borg­ar­stjórn Reykja­víkur sam­þykkti svo að selja hlut OR til Magma þann 15. sept­em­ber 2009. Hávær mót­mæli voru á borg­ar­stjórn­ar­fundi þegar salan var sam­þykkt og þrír af áhorf­endapöllum voru hand­teknir.

Alls átti Magma eftir þetta 41 pró­sent hlut í HS Orku.

Ódýrar aflandskrónur og uppkaup á rest

Í byrjun árs 2010 var greint frá því að Magma hefði keypt ódýrar aflandskrónur í októ­ber 2008 og notað þær til að fjár­magna hluta af stað­greiðslu Magma fyrir hluti sem fyr­ir­tækið hafði keypt í HS Orku.

Magma stofn­aði um þetta leyti dótt­ur­fé­lag á Íslandi og réð Ásgeir Mar­geirs­son, fyrr­ver­andi for­stjóra Geysi Green Energy, til að stýra því.

Í lok mars 2010 komst nefnd um erlenda fjár­fest­ingu að þeirri nið­ur­stöðu að kaup Magma á 41 pró­sent hlut í HS Orku, í gegnum sænska skúffu­fyr­ir­tækið Magma Energy Sweden, væru í sam­ræmi við lög og yrðu ekki stöðvuð af stjórn­völdum. Lauk þar með til­raunum opin­berra aðila að ganga inn í kaup­inn.

Ein verðmætasta eign HS Orku er 30 prósent hlutur í Bláa lóninu. Virði hennar hefur tekið stakkaskiptum á örfáum árum. Mynd: Bláa lónið
Ein verð­mætasta eign HS Orku er 30 pró­sent hlutur í Bláa lón­inu. Virði hennar hefur tekið stakka­skiptum á örfáum árum. Mynd: Bláa lónið

Þann 17. maí var síðan til­kynnt um að Magma hefði keypt 52,3 pró­sent hlut Geysis Green Energy í HS Orku á tæp­lega 16 millj­arða króna. Eftir kaupin átti Magma 98,5 pró­sent hlut í HS Orku. Ýmsir ráð­herrar úr flokki Vinstri grænna, sem þá sátu í rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni, vildu setja bráða­birgða­lög á kaupin til að koma í veg fyrir að orku­fyr­ir­tæki yrði nán­ast að öllu leyti í eigu erlends aðila.

Eftir háværar deilur greindi Ross Beaty, for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Magma, frá því að fyr­ir­tækið hefði hug á því að selja fjórð­ung í því til íslenskra fjár­festa til að skapa frið um eign­ar­haldið. Sátta­til­boðið gerði lítið til að lægja öld­urnar og í lok jan­úar 2011 úti­lok­aði Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, ekki að ríkið myndi taka eign­ar­hlut Magma í HS Orku eign­ar­námi. Af því varð ekki.

Magma Energy gekk skömmu síðar í gegnum sam­runa og hét eftir það Alterra Power. Það félag var skráð á markað í Kanada og Ross Beaty var helsti stjórn­andi þess.

Vorið 2011 átti Alterra Power 98,53 pró­sent hlut í HS Orku og sveit­ar­fé­lögin Reykja­nes­bær, Grinda­vík, Garður og Vogar sam­an­lagt 1,47 pró­sent hlut.

Heild­ar­kaup­verð Alterra/Magma á hlutum í HS Orku var um 33 millj­arðar króna.

Lífeyrissjóðirnir kaupa sig inn

Síðasta dag maí­mán­aðar 2011 var send út til­kynn­ing um að Jarð­varmi, félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, hefði keypt 25 pró­sent hlut í HS Orku á 8,1 millj­arð króna. Auk þess fékk félagið kaup­rétt á hærra gengi og rétt til að skrá sig fyr­ir allt að helm­ingi heild­ar­hluta­fjár HS Orku með kaup­um á nýj­um hlut­um sem HS Orka kann að gefa út í fram­tíð­inni. Jarð­varmi fékk tvo menn af fimm í stjórn HS Orku. Rík minni­hluta­vernd, virk þátt­taka í stjórn fé­lags­ins og form­leg aðkoma að öll­um meiri­hátt­ar ákvörð­unum á veg­um fé­lags­ins voru á meðal skil­mála við­skipt­anna. Sú minni­hluta­vernd, sem til­greind var í hlut­hafa­sam­komu­lagi sem ferð var sam­hliða við­skipt­unum, átti eftir að reyn­ast afdrifa­rík síðar.

Ári eftir að upp­haf­legu við­skiptin gengu í gegn nýtti Jarð­varmi kaup­rétt­inn sinn og greiddi 4,7 millj­arða króna fyrir við­bót­ar­hlut. Eftir kaupin var hluti Jarð­varma 33,4 pró­sent og sam­tals höfðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 14 greitt 12,8 millj­arða króna fyrir hann. Miðað við þann verð­miða var HS Orka í heild metið á um 38,3 millj­arða króna.

2012 varð síðan enn einn vend­ingin í eign­ar­haldi á HS orku. Þegar Magma Energy Sweden keypti upp­haf­lega hluti í orku­fyr­ir­tæk­inu af Reykja­nesbæ þá var meðal ann­ars greitt fyrir með skulda­bréfi. Reykja­nes­bær ákvað að selja það skulda­bréf árið 2012 til Fag­fjár­festa­sjóðs­ins ORK sem fjár­magn­aður var af líf­eyr­is­sjóðum og fag­fjár­fest­um. Sölu­verðið var þá sagt 6,3 millj­arða króna. Ástæðan var sú að Reykja­nesbæ vant­aði reiðufé vegna mjög vondrar fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins og átti ekki margar aðrar eignir eftir til að selja en umrætt skulda­bréf.

Ross Beaty er stjórnarformaður HS Orku og hefur leitt uppkaup erlendra aðila í fyrirtækinu. Hans aðkomu er nú senn að ljúka.
Ross Beaty er stjórn­ar­for­maður HS Orku og hefur leitt upp­kaup erlendra aðila í fyr­ir­tæk­inu. Hans aðkomu er nú senn að ljúka.

Það var með breytirétti, sem þýddi að hægt var að breyta því í hlutafé ef þannig á stæði. Það var gert árið 2017 og eftir það átti fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn 12,7 pró­sent í HS Orku.

Sá hlutur var svo seldur til sviss­neska fjár­fest­inga­fé­lags­ins Dis­r­uptive Capital Renewable Energy AG seint á síð­asta ári. Móður­fé­lag DC Renewable Energy AG, Dis­r­uptive Capital Finance er skráð í kaup­höll­ina í Sviss. Eigandi félags­ins er Bretinn Edmund Truell sem hefur unnið lengi að því að koma á sæstreng milli Íslands og Bret­lands. Hann greiddi rúm­lega níu millj­arða króna fyrir hlut­inn, en hluti kaup­verðs­ins er árang­urstengdur.

Eign­ar­haldið á HS Orku í dag, gangi boðuð kaup eftir, er því þannig að MIRA á 53,9 pró­sent hlut, Jarð­varmi í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða á 33,4 pró­sent og félag Truell á 12,7 pró­sent.

Losnuðu undan Helguvíkurmartröðinni

Und­an­farin ár hafa að öðru leyti verið nokkuð róleg hjá HS Orku, sér­stak­lega í sam­hengi við óróan sem var í kringum fyr­ir­tækið á árunum fyrir og eftir hrun. Fyr­ir­tækið hefur helst ratað í fréttir vegna til­rauna til að losna undan orku­sölu­samn­ingi sem það gerði við Norðurál í apríl 2007, vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helguvík. Til þess að byggja stærri útgáfu þess álvers þurfti rúm­lega 600 megawött af orku. Um 150 megawött áttu að koma frá HS Orku. Orku­veita Reykja­víkur skuld­batt sig einnig til að selja orku til verk­efn­is­ins og hóf raunar afhend­ingu á henni á árinu 2011, þótt ekk­ert álver væri ris­ið.

Samn­ing­ur­inn var, væg­ast sagt óhag­stæður fyrir HS Orku. Fyr­ir­tækið hefur nán­ast allan þann tíma sem liðin er frá und­ir­ritun hans reynt að losna undan samn­ingnum. Fyrir því voru tvær ástæður. Sú fyrri er að hann var ein­fald­lega það slakur að samn­ing­ur­inn gat ekki skilað HS Orku arð­semi. Ef HS Orka myndi selja Norð­ur­áli orku til verk­efn­is­ins sam­kvæmt samn­ingnum væri verðið sem fyrir feng­ist langt frá því að skila við­un­andi arð­semi fyrir orku­fyr­ir­tæk­ið. Hin síð­ari sú að Norðurál var ekk­ert að flýta sér við að klára að byggja álverið í Helguvík og taka við orkunni.

Samn­ing­ur­inn batt nán­ast alla þá orku sem mögu­legt var að fá út þeim virkj­ana­kostum sem eru í nýt­ing­ar­flokki, og HS Orka gæti nýtt.

HS Orka stefndi Norð­ur­áli fyrir gerð­ar­dóm í sum­arið 2014 til að reyna að slíta samn­ingnum.

Nið­ur­staðan kom 1. des­em­ber 2016. Hún var á þá leið að sökum til­tek­inna kring­um­stæðna sé samn­ing­ur­inn ekki lengur í gildi og að lok samn­ings­ins séu ekki af völdum HS Orku. Þá var kröfum Norð­ur­áls Helgu­víkur í mál­inu hafn­að.

Í ávarpi for­stjóra HS Orku í árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins vegna árs­ins 2016 sagði að HS Orka hefði unnið fulln­að­ar­sigur í mál­inu. „Það er gríð­ar­legt fagn­að­ar­efni fyrir félagið en óvissa um gildi samn­ings­ins og um það hvort álver yrði byggt í Helguvík hefur í fjöl­mörg ár heft fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu félags­ins.“

Falið virði og líkur á auknum rekstrarhagnaði

HS Orka er eina íslenska orku­­fyr­ir­tækið sem er í eigu einka­að­ila. Það á og rekur orku­ver í Svarts­engi og á Reykja­­­nesi auk þess sem virkj­ana­­­kostir sem fyr­ir­tækið á eru í nýt­ing­­­ar­­­flokki ramma­á­ætl­­­un­­­ar.

Rekstur HS Orku virð­ist vera í mjög góðu standi um þessar mundir. Í árs­lok 2017 átti fyr­ir­tækið eigið fé upp á 35,5 millj­arða króna og skil­aði hagn­aði umm á 4,6 millj­arða króna. Þar voru eignir HS Orku metnar á 48,4 millj­arða króna en flestir sér­fræð­ingar eru sam­mála um að þær séu veru­lega van­metnar. Í þeim sama árs­reikn­ingi var nefni­lega 30 pró­sent eign­ar­hlutur fyr­ir­tæk­is­ins í Bláa lón­inu bók­færður á 2,7 millj­arð króna, sem er lík­ast til umtals­vert undir mark­aðsvirði í ljósi þess að boði upp á ell­efu millj­arða króna í hlut­inn var hafnað fyrir tveimur árum og að Bláa lónið var verð­lagt á um 50 millj­arða króna alls í við­skiptum sem áttu sér stað tengt því í lok árs í fyrra.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem not­ast var við vegna sölu­fer­il­is­ins sem lauk með kaupum MIRA, og bar nafnið „Project Thor“, sagði að áætl­aður EBITDA-hagn­aður HS Orku (hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta) á árinu 2019 væri 31 milljón dala, eða tæp­lega 3,8 millj­arðar króna. Þar er hins vegar einnig gert ráð fyrir að EBITDA-hagn­aður HS Orku muni nán­ast tvö­fald­ast á árinu 2023 og verða um 60 millj­ónir dala, eða um 7,3 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HSOrka

Mest lesið undanfarið ár