Stjórn Festi endurskoðar starfsreglur sínar

Stjórn Festi sendi í dag frá sér tilkynningu um að þörf sé á að endur­skoða starfs­reglur stjórn­ar­innar vegna þess hvernig tekið var á máli Þórðar Más Jóhann­es­sonar, fyrr­verandi stjórnar­formanns fyrir­tækisins, sem lét af störfum vegna ásakana um kynferðis­brot.

Stjórn endurskoðar starfsreglur
Stjórn end­ur­skoðar starfs­reglur Stjórn Festi hefur ákveðið að fara í end­ur­skoðun á starfs­reglum sínum eftir að hafa tekið á máli Þórðar Más Jóhann­es­sonar sem lét af störfum sínum sem stjórn­ar­for­maður vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot.

Í tilkynningu sem Festi sendi Kaup­höllinni rétt í þessu segir að stjórn fyrir­tækisins telji að þörf sé að endur­skoða starfs­reglur stjórnar vegna þess hvernig tekið var á máli Þórðar Más Jóhannessonar, fyrr­verandi stjórnar­formanns fyrir­tækisins, sem lét af störfum vegna ásakana um kynferðis­brot. Þá segir stjórnin að skilaboð frá samfélaginu séu skýr um að „fyrirtæki sem tengjast slíkum málum bregðist fyrr við og taki á málum með skýrari og ákveðnum hætti“. Þórður Már er einn fjögurra manna sem Vítalía Lazareva hefur sagt að hafi brotið á sér í sumar­bústaða­ferð í desember 2020.

Stjórnin segir að hún hafi litið málið alvarlegum augum frá því að vitneskja var um það innan hennar:

„Umrætt mál var litið mjög alvarlegum augum af stjórn Festi frá því hún heyrði af því fyrst og var það tekið til skoðunar á vettavangi hennar í samræmi við þau lög, samþykktir og reglur sem henni ber að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár