Vilja stækka og dýpka gjallnámu í Seyðishólum – Flutningabílar ferja efnið til Þorlákshafnar

Til stendur að vinna sama magn efnis úr gjallnámu í Seyðis­hólum í Grímsnesi á fimmtán árum og gert hefur verið síðustu 70 árin. Meirihlutinn yrði fluttur úr landi.

Náman eins og hún er í dag.
Náman eins og hún er í dag. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Áformað er að auka efnistöku úr gjallnámu í Seyðis­hólum í Grímsnes- og Grafnings­hreppi í um 74 prósent á ári svo flytja megi meira magn á markað í útlöndum. Við vinnslu­aukninguna myndu fleiri og stærri flutninga­bílar flytja efni frá námunni, ýmist til kaupenda innanlands eða til Þorláks­hafnar þaðan sem það yrði flutt úr landi. Framkvæmda­aðilinn Suðurtak metur heildar umhverfis­áhrif framkvæmdarinnar óveruleg.

Efnistaka úr námunni hófst fyrir 1950 þegar Jón Loftsson ehf hóf fram­leiðslu mátsteina úr Seyðis­hólagjalli. Samkvæmt mælingum er ætlað að búið sé að vinna alls um 450 þúsund m3 af gjalli úr þessari námu frá upphafi. Með stækkun námunnar, sem fjallað er um í nýrri umhverfis­mats­skýrslu, er fyrir­hugað að taka úr henni allt að 500 þúsund rúmmetra (m3) á næstu 15 árum eða um 33 þúsund m3 á ári að meðaltali. Suðurtak er með námuna á leigu en útflutningur efnisins er í höndum Jarð­efnaiðnaðar ehf. Miðað við þessar magntölur á að vinna svipað magn af efni úr námunni á 15 árum og gert hefur verið á meira en 70 árum til þessa.

Hver flutninga­bíll Suðurtaks, sem flytur efnið til kaupenda innanlands, tekur um 15 rúmmetra af gjalli. Bílarnir sem Jarð­efnaiðnaður myndi nota eru mun stærri og tækju um 30 rúmmetra. Miðað við að unnið yrði í námunni 150 virka daga á ári þyrfti um 1.500 bílferðir á ári, að jafnaði um tíu bíla á hverjum þeim degi, þar af fimm bíla á dag með gjall um 50 kílómetra leið til Þorláks­hafnar. „Þessar tölur kunna að rokka verulega í samræmi við eftir­spurn,“ segir í umhverfis­mats­skýrslu Suðurtaks. Þar segir ennfremur að þar sem helmingi stærri bílar en nú eru notaðir kæmu til sögunnar myndi umferð þeirra frá námunni aukast um 46 prósent þrátt fyrir að vinnslu­aukningin næmi 74 prósentum.

Seyðis­hólar eru rauð­leitir gjall­gígar sem rísa um 100 metra upp úr flatlendinu umhverfis. Þeir eru áberandi kenni­leiti í Grímsnesi neðan­verðu. Efstu kollar hólanna eru að mestu ógrónir og sést rauðleitur litur gjallsins langt að.

Heildaráhrifin metin óveruleg

Náman sem fyrir­hugað er að stækka og dýpka kallast E30b og er við Hólaskarð. Námu­svæðið er mest áberandi af Biskups­tungna­braut sunnan Kerhóls og niður fyrir Kerið og frá frístunda­byggðinni sunnan og vestan við neðri Seyðis­hólinn. Að henni liggur 1 kílómetra malar­vegur frá Búrfells­vegi. Sem mótvægis­aðgerð til að draga úr ryk- og hávaða­mengun frá auknum flutningum yrði kaflinn malbikaður, segir í skýrslu Suðurtaks.

Í fyrstu skrefum mats á umhverfis­áhrifum framkvæmdarinnar bárust athuga­semdir um gjallfok frá námunni í vondum veðrum yfir frístunda­byggðir við hólana. Suðurtak telur að gjallfok, hvort sem það eigi uppruna sinn í námunni eða í ógrónu, náttúru­legu umhverfi, muni ekki aukast með stækkun námu­holunnar. Áhrif á loftgæði framkvæmdarinnar eru því metin óveruleg.

Áhrif framkvæmdar á ásýnd Seyðis­hóla, frá því sem nú er, eru metin frekar neikvæð og óafturkræf. Áhrif á gróður eru metin óveruleg og sömu sögu er að segja um áhrif á fuglalíf. Þá telur framkvæmda­aðili, í ljósi þess að námu­gröftur hefur verið stundaður á svæðinu í áratugi, að áhrif á jarð­myndanir verði lítil sem engin umfram það sem þegar er orðið. Námuholan mun stækka nokkuð og nýtt yfirborð náma­veggjanna mun koma í ljós, segir í mats­skýrslunni en þrátt fyrir að hólarnir séu eldvörp sem njóti verndar í náttúru­verndar­lögum telur Suðurtak það ekki eiga við vegna mikillar röskunar svæðisins nú þegar.

Þrátt fyrir að aukning verði á umferð vörubíla á aksturs­leiðum til Þorláks­hafnar eru áhrif á umferð talin óveruleg og þar sem efnis­takan og útflutningur á gjalli sé atvinnu- og gjaldeyris­skapandi eru áhrif á samfélag metin frekar jákvæð.

Niður­staðan: Framkvæmda­aðilinn Suðurtak metur heildar­áhrif framkvæmdarinnar óveruleg.

Stærð námu­svæðis í dag er um 3,5 hektarar. Síðastliðin fjögur ár hefur efnis­takan numið samtals um 75 þúsund rúmmetrum eða tæpum 19 þúsund m3 á ári. Þar hefur Jarð­efnaiðnaður flutt árlega út 5-10 þúsund m3. Sá útflutningur mun aukast verulega með stækkun námunnar eða í 20-25 þúsund rúmmetra á ári.

Jarð­efnaiðnaður flytur gjallið úr Seyðis­hólum til Norður­landanna þar sem það er notað sem grunnefni í ræktun á gróðri á húsþökum í samkeppni við önnur ræktunar­efni. „Þakræktun þykir mikilvæg vegna þeirra loftslags­breytinga sem hafa orðið á síðustu áratugum og í sumum borgum í Evrópu og Banda­ríkjunum er einungis leyft að reisa opinberar byggingar hafi þær græn þök,“ stendur í umhverfis­mats­skýrslu Suðurtaks.

Innanlands hefur gjallið verið notað í stíga- og gatnagerð, fyllingar að mann­virkjum og til iðnaðar­framleiðslu.

Kvika hátt í loft upp varð að gjalli

Seyðis­hólar eru hluti af hinni litlu og afmörkuðu Grímnesgosrein. Gríms­nesgosin áttu sér stað fyrir 7.500-9.500 árum, eftir að ísöld lauk og liggja gosefnin mislægt ofan á rofnum jarðlaga­stafla sem myndaður er á ísöld. Uppstreymis­hraði kvikunnar var allmikill sem leiddi til þess að gosin urðu blanda af hraun­rennsli og háum kviku­strókum. Í gosunum þaut því tiltölu­lega mikið magn af kviku hátt í loft upp og tiltölu­lega mikill hluti þeirrar kviku storknaði í loftinu og varð að gjalli, sem að miklu leyti hlóðst upp í myndarleg gíguppvörp á gosstaðnum.

Seyðis­hólar eru að sögn framkvæmda­aðila víða raskaðir af gömlum námu­svæðum. Búið sé að taka efni úr mörgum gíganna á Gríms­nesgos­reininni á undan­genginni öld og „er nú líklega aðeins Kerhóll einn eftir nánast ósnertur að kalla“. Þannig sé „aragrúi náma“ stórra og smárra hingað og þangað á svæðinu.

„Af tillitssemi við umhverfið hefur stærð námu­svæðis verið haldið í lágmarki í stað þess að fletja það út,“ segir í skýrslu Suðurtaks. „Staðan er því sú að hér er náma sem er tiltölu­lega lítil að umfangi en djúp og með bröttu stáli.“

Umhverfis­mats­skýrslu Suðurtaks ehf. má lesa hér á vef Skipulags­stofnunar. Allir geta veitt umsögn um hana til 20. október.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár