Gagnrýnir Bjarna fyrir að draga úr lýðræði í Sjálfstæðisflokknum: „Ég leggst alfarið gegn þessum hugmyndum“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son svarar spurn­ingum um hvaða munur sé á honum mál­efna­lega og póli­tískt og Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni flokks­ins. Hann gagn­rýnir að Bjarni vilji færa valdið í Sjálf­stæð­is­flokknum í auknum mæli til mið­stjórnar flokks­ins. Guð­laugur nefnir einnig upp­runa sinn og að allir eigi að geta kom­ist til met­orða í flokknum óháð ætt­erni.

Útskýrir muninn á sér og Bjarna
Útskýrir mun­inn á sér og Bjarna Guð­laugur Þór Þórð­ar­son útskýrir mun­inn á sér og Bjarna Bene­dikts­syni, bæði póli­tískt og eins per­sónu­lega, en spurt hefur verið að því hvaða mál­efna­legi munur sé á þeim. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son segir að hann sé ósam­mála þeim hug­myndum sem mið­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur lagt fram fyrir kom­andi lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins um breyt­ingar á skipu­lags­reglum flokks­ins. Eitt sem hann nefnir er að hann sé ósam­mála því að hætta eigi að halda lands­fund á tveggja ára fresti. Guð­laugur og Bjarni mæt­ast í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins um kom­andi helgi og spyrja margir sig hvaða póli­tíski munur sé á fram­bjóð­end­unum. 

Guð­laugur segir um hinn póli­tíska mun á sér og Bjarna: „Dæmi um ólíkar áherslur okkar má t.d. sjá í þeim breyt­ingum á skipu­lags­reglum flokks­ins sem mið­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar leggur nú fyrir lands­fund. Í stuttu máli snúa þær breyt­ingar að stærstum hluta að því að draga úr lýð­ræði og vægi gras­rót­ar­innar í flokknum. Eitt dæmi um það er til­laga um að í stað þess að sjálf­stæð­is­menn geti gengið að því vísu að lands­fundur sé hald­inn á tveggja ára fresti þá er sú …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hvorugum treystandi.
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Vellýgni Bjarni trúir ekki á lýðræði! Af tveimur döprum kostum, mæli ég með Guðlaugi Þór.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár