Í kafbáti Jóns Kalmans: „Áfengið fer eins og sandpappír á karakterinn“

Jón Kalman Stef­ánsson rithöfundur tileinkar Eiríki Guðmunds­syni heitnum, vini sínum, nýjustu skáldsögu sína. Eiríkur lést í ágúst á síðasta ári eftir að hafa glímt við alkóhólisma um árabil. Í bók Jóns Kalmans eru áhrifa­miklar lýsingar á áhrifum alkóhólisma á einstaklinga og aðstand­endur þeirra.

Áhrifamikil efnisgrein
Áhrifa­mikil efn­is­grein Í bók Jóns Kalmans er að finna eina áhifa­mestu efn­is­grein sem blaða­maður hefur séð í bók eftir hann. Þar fjallar Jón Kalman um lífið og hvað ein­kennir það. Jón Kalman sést hér á heim­ili sínu í Reykja­vík þar sem við­talið við hann var tekið. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þetta gerðist á löngum tíma, eins og oft er með alkóhól­ista. Smám saman dimmir í kringum þá. Eins og fólk sem hefur þurft að horfa upp á vini, ættingja og maka sogast inn í þetta þekkir þá máir alkóhólismi út svip­brigði og áfengið fer eins og sand­pappír á karakterinn og gerir hann svipminni. Það er þetta sem alkóhólisminn gerir,“ segir rithöfundurinn Jón Kalman Stef­ánsson, þegar hann er spurður um andlát vinar síns, Eiríks Guðmunds­sonar útvarps­manns, sem hann tileinkar nýjustu skáldsögu sína, Gula kafbátinn. Bókin kom út fyrir jólin.  

Eiríkur, sem starfaði um árabil sem útvarps­maður á RÚV, hafði glímt við alkóhólisma í mörg ár áður en hann lést í ágúst í fyrra einungis 52 ára að aldri. 

 „Við vorum sálu­félagar í rúman aldar­fjórðung, bæði í skáldskap og lífinu almennt,“ segir Jón Kalman. „Lengi vel ræddum við saman á nánast hverjum degi, annaðhvort í síma en aðallega í …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár