Sumarið kemur kannski eftir 10 daga

Frost og snjókoma um helgina. Kulda­skeið að ganga í garð.

Kuldinn kemur
Kuldinn kemur Páll Berg­þórs­son, fyrr­ver­andi veð­ur­stofu­stjóri, segir að sum­arið komi ekki fyrr en eftir 10 daga.

Þrátt fyrir að sumar­dagurinn fyrsti sé á morgun bólar ekki á sumrinu. Frost verður um allt land um helgina og ekki fyrir­sjáanlegt að það hlýni á næstunni. Á laugardag verður 10 stiga frost á hálendinu. Í höfuð­borginni verður eins stigs frost. Á sunnudag er spáð snjókomu um norðan­vert landið. Frostið verður frá allt frá 1 gráðu og upp í 7. 

Páll Bergþórsson, fyrr­verandi Veður­stofustjóri, segir að þetta tíðarfar ráðist að miklu leyti af kuldanum í sjónum. 

„Það verður kuldi í sex daga en hlýnar dálítið eftir 10 daga. Þá getur þetta farið að lagast," segir Páll sem fylgist grannt með öllu sem snýr að veðrinu. 

Hann segir að ástandið sé óvenjulegt ef miðað sé við undan­farinn áratug þegar hlýindi hafi verið ráðandi. Ef miðað sé við söguna megi reikna með því að kaldara verði næstu árin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár