Umframorkan næg til að framleiða rafeldsneyti fyrir vöru- og farþegaflutninga

Í ársgamalli skýrslu um nýtingu rafelds­neytis hérlendis kemur fram að næg umfram­orka sé til í raforku­flutnings­kerfinu til að knýja alla vöru og farþega­flutninga innanlands með rafeldsneyti.

Hægt væri að nýta umframorkuna í raforkukerfinu okkar betur til að framleiða meira vistvænt eldsneyti.
Hægt væri að nýta umframork­una í raf­orku­kerf­inu okkar betur til að fram­leiða meira vist­vænt elds­neyti. Mynd: Flickr

Með betri nýtingu á umfram­getu raforku­kerfisins væri hægt að knýja alla vöru- og farþega­flutninga á Íslandi með vetni án þess að virkja meira. Þó sé óraunhæft að full orku­skipti geti átt sér stað hérlendis án aukinnar orku­framleiðslu. Þetta kemur fram í skýrslu um fýsileika þess að framleiða rafeldsneyti innanlands, sem atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið birti í fyrra­sumar.

„Engin spurning“ um fleiri virkjanir

Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, sagði í viðtali við RÚV í síðustu viku að ekki sé næg orka til fyrir orku­skiptin hérlendis. Þó sé ekki þörf á meiri orku strax, en á næstu 20-30 árum verði nauðsynlegt að finna leið til að nota allt að tíu terawattsstundir til viðbótar, sem jafn­gildir um 50 prósenta aukningu við núverandi notkun. Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra tók undir þessi orð og sagði það vera „engin spurning“ um að virkja þyrfti meira til að tryggja orku­skiptin.

Samkvæmt Herði er ein af ástæðunum fyrir þessa auknu orkuþörf sú að framleiða þurfi sérstakt rafeldsneyti til að knýja stærri bíla, skip og flugvélar. Slíkt eldsneyti krefst meiri orku sem nýtist verr en bein nýting raforku.

Margar tegundir eldsneytis

Rafeldsneyti er samheiti yfir margar tegundir eldsneytis sem er framleitt úr hráefni og raforku og orkan úr eldsneytinu kemur að mestu eða öllu leyti úr raforkunni. Vetni er ein tegund slíks eldsneytis, en einnig er hægt að nota vetnið til að búa til rafammoníak, rafmetan, rafmetanól og rafolíu.

Í skýrslunni, sem var unnin af ráðgjafa­fyrirtækinu Icefuel, er farið yfir kosti og galla þessara eldsneytis­kosta, en þær eru misdýrar og hafa mismikil áhrif á umhverfið.

Raforku­fram­leiðslan hérlendis hefði þurft að tvöfaldast ef rafeldsneyti hefði verið nýtt í stað allrar olíu sem var notuð árið 2019, samkvæmt skýrslunni. Þó er bætt við að aðrar leiðir séu mögulegar til að minnka þessa umfram­þörf af orku, líkt og t.d. rafvæðing bíla­flotans, en rafeldsneyti fyrir bíla hefði annars krafist 6,4 gígawattsstundir.

Einnig stendur í skýrslunni að töluvert sé af ónýttri umfram­orku hérlendis, þar sem vatns­búskapur er breyti­legur á milli árstíða. Vegna hlýnunar og hraðari bráðnunar jökla megi gera ráð fyrir að þessi ónýtta umfram­orka eigi eftir að aukast.

Þessi ónýtta umfram­orka nemur um tveimur terawattsstundum í meðal vatnsári, samkvæmt Orku­stofnun. Þetta er nóg til að framleiða um 35 þúsund tonn af vetni, en skýrslan segir það vera nóg til að knýja alla vöru- og farþega­flutninga á Íslandi.

Geta skipin gengið á repjuolíu?

Samkvæmt Icefuel myndi skipting fiskiskipa yfir í rafeldsneyti krefjast 3,4 gígawattsstunda af raforku. Í skýrslu verkfræði­stofunnar EFLU frá árinu 2019 um orku­skipti skipa­flotans kemur þó fram að lífeldsneyti, líkt og repjuolía, kæmi einnig til greina sem nýr orkugjafi fyrir skipin.

Í skýrslu EFLU segir að repjuolía, sem yrði framleidd með repju­ræktun, gæti gengið beint á núverandi vélar skipanna án nokkurra breytinga. Auk þess væri tæknin við fram­leiðslu olíunnar vel þekkt og hægt væri að framleiða hana hér á landi.

Hins vegar er óvíst hversu mikill ávinningurinn yrði í losun kolefnis við slíka eldsneytis­framleiðslu, sér í lagi ef framleitt yrði á fram­ræstum mýrum. Skýrsla Icefuel gerir einnig ráð fyrir að lífeldsneyti líkt og repju­olían verði á einhverjum tíma­punkti takmörkuð til að ýta ekki undir samkeppni um ræktar­land til fæðu­framleiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár