Pia segir pistil Guðmundar í Kjarnanum lykta af minnimáttarkennd

Forseti þjóðþings Danmerkur, Pia Kjærsgaard, gagnrýnir skrif Guðmundar Andra í Kjarnanum um hlutverk hennar á fullveldis­hátíð Íslendinga. Guðmundur svarar gagnrýni Piu og segir hana byggja á sýn stórdanans á Íslendingana.

Pia Kjærsgaard, forseti þjóðþings Dana.
Pia Kjærs­gaard, for­seti þjóð­þings Dana. Mynd: EPA

Forseti danska þjóð­þingsins, Pia Kjærsgaard, segir skrif Guðmundar Andra Thors­sonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í Kjarnanum lykta af hræsni, móðursýki og „íslenskri minni­máttarkennd.“ Guðmundur svaraði gagn­rýninni og segir hana byggjast á sýn stórdanans á Íslendinga. Þetta kemur fram í pistli Piu á vefsvæðinu Information.dk í dag og á Facebook-síðu Guðmundar Andra.

Guðmundur skrifaði pistilinn „Um kurteisi,“ sem birtist fyrst á vefsvæði Kjarnans fyrir rúmri viku síðan. Í þeim pistli fjallar hann um heimsókn Piu til Alþingis á aldar­afmæli full­veldisins þann 18. Júlí síðastliðinn og ræðu­höldum hennar á Þing­völlum í tilefni þess. Dönsk þýðing pistilsins var svo birt á Information.dk fyrir þremur dögum síðan, ásamt skýringu á orðinu „Stórdani,“ sem á að lýsa hroka­fullu viðmóti Dana í garð Íslendinga.

Handfylli anarkista og einn sósíaldemókrati

Í pistli sínum sem birtist fyrr í dag segir Pia hins vegar að umræðan um heimsókn hennar á Alþingi hafi tekið óvænta beygju með skrifum Guðmundar. Málið hafi hins vegar í upphafi snúist „handfylli anarkískra meðlima Pírata“ ásamt einum sósíal­demókrata sem yfirgáfu hátíðar­höldin við Þingvelli meðan á ræðu hennar stóð vegna hennar persónu. Þar hefur Pia átt við þingflokk Pírata sem sniðgekk hátíðar­fundinn á Þing­völlinn vegna komu hennar og Helgu Völu Helga­dóttur, þingmann Samfylkingarinnar, sem gekk út af fundinum undir ræðu­höldum Piu.

Með innleggi Guðmundar í umræðuna sé heim­sóknin hennar hins vegar sett í sögulegt samhengi um sambandið milli Íslands og Danmerkur í gegnum fleiri árhundruð, þar sem Danmörku sé stillt upp sem eins konar náðar­lausum nýlendu­herra. Á sama tíma sé henni einnig stillt upp sem Stórdana, eða með öðrum orðum sem gamaldags khaki-klæddum nýlendu­herra í Afríku. „Ég hef verið ásökuð um margt á mínum 34 árum í danskri pólitík, en aldrei með slíkum undarlegum hugmyndum,“ bætir Pia við.

Enn fremur segist Pia ekki vita hvernig hún eigi að bera sig að í þessum ásökunum þar sem hún hafi ekki verið fædd þegar Ísland var dönsk „nýlenda.“ Fyrst og fremst finnist henni rök Guðmundar lykta af frekar ósnyrtilegri minni­máttarkennd.

Hræsni og móðursýki

Einnig bendir Pia á meinta hræsni í skrifum Guðmundar vegna gagnrýni hans á þjóðernis­hyggju í málflutningi hennar auk þess sem hún ali á sundrun, þar sem Íslendingar sjálfir haldi utan um mjög sterkar þjóðar­hefðir sjálfir. Því til stuðnings nefnir hún nafnahefð landsins auk íslensku málnefndarinnar og þeirra fjölda nýyrða sem hún hefur skapað á undan­förnum árum, en samkvæmt Piu hefur ekki einu sinni flokkur hennar, sem skilgreindur er sem hægri­sinnaður popúlista­flokkur, ekki einu sinni stungið upp á viðlíka hrein­tungustefnu í Danmörku. Þess vegna, að sögn Piu, hljómi skrif Guðmundar hræsnaraleg og móðursjúk.

Enn fremur spyr Pia hvort Guðmundur viti hvaða þróun hann sé að gagnrýna og hversu mörgum innflytjendum Ísland hafi yfirhöfuð tekið á móti. Hún ráðleggur svo Guðmund Andra um að fræðast um stefnu sósíal­demókrata­flokka í öðrum Evrópu­löndum, til að mynda í Danmörku, en þar hefur flokkurinn tekið upp harðari afstöðu gagnvart innflytjendum.

Sýn stórdanans

Guðmundur Andri svaraði gagnrýni Piu á Facebook-síðu sinni í dag, en þar sagði hann Piu ekki átta sig á tvennu varðandi Íslendinga. Annars vegar byggi gagnrýni hennar á sýn stórdanans á þjóðina, að þeir séu íbúar afskekktrar eyju sem tækju ekki á móti mörgum innflytjendum. Hins vegar sé raunin önnur, en fullt væri af innflytjendum hér.

Hins vegar sagði Guðmundur að virðing fyrir eigin menningar­verðmætum, svo sem tungu­málinu, sé megin forsenda þess að maður beri virðingu fyrir menningar­verðmætum annarra og skilji þörf þeirra til að varðveita ýmislegt úr eigin siðum og arfleifð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár