Vandræðalegustu mál stjórnarandstöðunnar

Stundin tók saman nokkur mál sem hafa dregið úr trúverðug­leika stjórnar­andstöðu­flokka.

Í nýjasta tölublaði Stundarinnar er fjallað um yfir­standandi kjör­tímabil, meðal annars arfleifð ríkis­stjórnarinnar og hneykslismál sem komið hafa upp á undan­förnum árum. Þá eru tekin saman þrjú vandræðalegustu mál stjórnar­andstöðunnar. Sá kafli birtist hér að neðan.

Hjáseta við afgreiðslu búvörufrumvarps

Hjáseta Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna í atkvæða­greiðslu um búvöru­samninga ríkis­stjórnarinnar við bændur þann 13. september síðastliðinn vakti mikla hneykslan og reiði á samfélags­miðlum og í fjöl­miðlum. Í frum­varpinu eru bændum gefin fyrirheit um ríkis­stuðning upp á 12 til 13 milljarða á ári næstu 10 árin. Alls eru þetta samtals meira en 130 milljarðar króna en ofan á þetta bætist óbeinn stuðningur í formi toll­verndar upp á um það bil 9 milljarða.

 

Haft var eftir þing­mönnum Pírata að þeir hefðu ekki kynnt sér málið nægilega vel til að treysta sér til að taka afstöðu. Þingmenn Samfylkingarinnar, sem sjálfir höfðu lýst yfir áhyggjum af því að endur­skoðunar­ákvæði frum­varpsins væri veikburða og hefði lítið vægi, réttlætu hjásetu sína eftir atkvæða­greiðsluna með því að vísa til sama endur­skoðunar­ákvæðis og fagna tilkomu þess. Málið reyndist þing­mönnum Vinstri grænna ekki jafn óþægilegt, enda hefur flokkurinn aldrei gefið sig sérstak­lega út fyrir að vilja koma á róttækum kerfis­breytingum í land­búnaði öðrum en þeim er lúta að umhverfis­málum og dýra­velferð. Björt framtíð stóð uppi sem eini stjórnar­andstöðu­flokkurinn sem greiddi atkvæði gegn frum­varpinu og hefur í kjölfarið aukið við fylgi sitt í skoðana­könnunum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár