Íslenskt sendiráð verður opnað í Póllandi

Til stendur að opna íslenskt sendiráð í Varsjá, höfuðborg Póllands, í haust. Stofnun sendiráðs í Varsjá var á meðal tillagna sem lagðar voru til í skýrslu sem kom út síðasta haust um samskipti Íslands og Póllands.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Gerard Sławomir Pokruszyński, sendi­herra Póllands á Íslandi. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Ákveðið hefur verið að opna íslenskt sendiráð í Varsjá, höfuðborg Póllands, síðar á þessu ári. Sendi­ráðið verður 27. sendi­skrifstofa Íslands á erlendri grundu, samkvæmt því sem segir í frétta­tilkynningu frá utan­ríkis­ráðuneytinu.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra kynnti tillögu um málið á fundi ríkis­stjórnarinnar síðasta föstudag og kynnti utan­ríkismála­nefnd þingsins málið í morgun. Hún átti síðan fund með Gerard Sławomir Pokruszyński, sendi­herra Póllands á Íslandi, í hádeginu í dag þar sem honum var greint frá áformunum.

Í tillög­unni er lagt til að fyrirsvar vegna Litáen, auk Úkraínu og Belarús (Hvíta-Rússlands), verði fært til hinnar nýju sendi­skrifstofu í Varsjá.

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti Íslands og Póllands hafi aukist verulega á undan­förnum árum og þá eigi sívaxandi fjöldi Íslendinga uppruna sinn að rekja til Póllands.

„Hagsmunir landanna fara saman í mikil­vægum mála­flokkum, svo sem öryggis- og varna­málum. Þá hafa aukin samskipti landanna, ekki síst vegna fjölda Pólverja sem eru búsettir á Íslandi, eflt viðskipta- og menningar­tengsl,“ segir í tilkynningu utan­ríkis­ráðuneytisins.

Fullgilt sendiráð Póllands á Íslandi frá 2013

Pólsk stjórn­völd hafa verið með sendi­skrifstofu í Reykjavík frá 2008, fyrst með aðal­ræðis­skrifstofu og síðan fullgilt sendiráð frá árinu 2013.

„Með opnun sendi­skrifstofu Íslands í Varsjá kemst loks á nauðsynleg gagnkvæmni í stjórnmála­samband ríkjanna og það er ánægjulegt að geta stigið það skref og undir­strikað hversu verðmæt vinátta þjóðanna er fyrir okkur Íslendinga. Pólska sendi­ráðið í Reykjavík hefur sinnt mikil­vægri þjónustu við þann stóra hóp Pólverja sem býr á Íslandi. Íslenskt sendiráð í Varsjá getur að sama skapi veitt íslenskum ríkis­borgurum og Pólverjum með náin tengsl við Ísland þjónustu og um leið greitt götu íslenskra fyrir­tækja á þessum slóðum og gætt íslenskra hagsmuna, til dæmis á vettvangi Uppbyggingar­sjóðs EES,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur utan­ríkis­ráðherra í tilkynningu ráðuneytisins.

Stofnun sendiráðs Íslands í Varsjá var á meðal tillagna sem lagðar voru til í skýrslu sem kom út síðasta haust um samskipti Íslands og Póllands, en skýrslan byggði á vinnu starfs­hóps sem settur var á laggirnar í tíð Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar sem utan­ríkis­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár