Samkeppniseftirlitið ætlar að kortleggja eignatengsl í sjávarútvegi

Samkeppnis­eftirlitið ætlar að kort­leggja bæði eignar- og stjórnunar­tengsl í íslenskum sjávar­útvegi. Matvæla­eftirlitið hefur gert sérstakan samning við eftir­litið um þessa kort­lagningu. Rann­sóknin er liður í heildar­stefnumótun í sjávar­útvegi.

Eignanet útgerðarinnar
Eignanet útgerð­ar­innar Sam­keppn­is­eft­ir­litið ætlar að kort­leggja stjórn­unar- og eigna­tengsl útgerð­ar­fyr­ir­tækja á Íslandi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Samkeppnis­eftirlitið ætlar að ráðast í kort­lagningu á eigna- og stjórnunar­tengslum í íslenskum sjávar­útvegi. Athugunin er liður í heildar­stefnumótun í sjávar­útvegi sem unnið er að í matvæla­ráðuneytinu. Gerður hefur verið sérstakur samningur á milli ráðuneytisins og eftirlitsins til að fjármagna vinnu við þessa kort­lagningu. Þetta kemur fram í tilkynningum á vefjum matvæla­ráðuneytisins og Samkeppnis­eftirlitsins. 

Niður­stöður úr þessari athugun eiga að liggja fyrir í lok næsta árs. Þær eiga svo að nýtast fleirum en Samkeppnis­eftirlitinu og er sérstak­lega vísað til Fiskistofu, Skattsins og Seðla­banka Íslands í því samhengi, í tilkynningu ráðuneytisins. Þar segir að kort­lagning eigi að nýtast við þekkingar­uppbyggingu og við beitingu laga­fyrirmæla á viðkomandi sviði. Samhliða athuguninni á að efla samstarf þessara stofnanna. 

„Í því felst að umgjörð um eftirlit með stjórnunar- og eigna­tengslum í íslensku atvinnu­lífi verði styrkt, rutt verði úr vegi mögulegum hindrunum í samstarfi hlut­aðeigandi stofnana og skilvirkni í stjórn­sýslu á þessu sviði aukin. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Takk fyrir góða grein!
    1
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Útvegsgreifarnir eiga nú einn hver tól og tæki í verkfærakassanum til að koma í veg fyrir þetta ,nú annars kalla þeir bara í Bjarna og Kötu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár