Íran viðurkennir að hafa skotið niður þotuna

Loft­varnarkerfi Írans skaut niður 737 800 Boeing vél Ukraine International, skömmu eftir flugtak, með þeim afleiðingum að allir um borð létu lífið.

Loftvarnar­skeyti Íran skaut niður farþega­þotu með þeim afleiðingum að 176 létust.

Stjórn­völd í Íran hafa viðurkennt að loft­varnarkerfi landsins hafi skotið niður farþega­þotu Ukraine International með þeim afleiðingum að 176 létu lífið, allir um borð. Þetta er sagt hafa verið óvilja­verk.

Loft­varnar­kerfið var virkt í gangi, skömmu eftir að Íran hafði gert flugskeyta­árás á tvo flugvelli í Írak, þar sem bandarískir hermenn héldu sig.

Árásirnar voru hefndar­aðgerð fyrir drónaárás á Qasamn Soleimani, æðsta mann Íranshers, og lést hann í árásinni.

New York Times greindi frá því í gær, að Bandaríkjaher hefði einnig gert árás á annan háttsettann mann innan íranska hersins á sama tíma, en sú árás var gerð í Jemen. Sú árás misheppnaðist.

Dregið hefur úr spennunni milli Írans og Banda­ríkjanna undan­farna daga, en hún er þó enn mikil og óvissa fyrir hendi um hvort átök brjótist. Þannig hafa stjórn­völd í Íran lofað því að hefna enn frekar fyrir morðið á Soleimani.

Justin Trudeau, forsætis­ráðherra Kanada, sagði á blaðamanna­fundi í gær, að hann teldi allar líkur á því að her Írans hefði skotið þotuna niður, og hafa stjórn­völd nú staðfest það. Yfir 60 Kanada­búar féllu þegar flugvélin fórst, en 138 farþegar vélarinnar voru á leið til Toronto með tengi­flugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár