Danski herinn var í viðbragðsstöðu fyrir árás Bandaríkjanna á Grænland

Hótanir Banda­ríkja­for­seta voru teknar alvar­lega og danski her­inn var með áætlun um að veita við­nám með hjálp banda­manna.

Frá Nuuk
Frá Nuuk Græn­lend­ingar hafa upp­lifað streitu eftir hót­anir Banda­ríkja­for­seta um að yfir­taka landið. Danski her­inn hafði verið settur í við­bragðs­stöðu. Mynd: Golli

Her­sveitum sem dönsk yfir­völd sendu til Græn­lands var skipað að vera í við­bragðs­stöðu fyrir mögu­lega árás Banda­ríkj­anna, að því er danska rík­is­út­varpið (DR) greindi frá í dag.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, dró í bili til baka hót­anir um að ná Græn­landi með valdi eftir fund með Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO, á mið­viku­dag og sagð­ist hafa náð „ramma­sam­komu­lagi“ um eyj­una á norð­ur­slóðum, sem þó hefur ekki verið kynnt fyrir græn­lenskum stjórn­völdum.

Þar áður hafði Trump ekki úti­lokað beit­ingu valds og full­yrt að Banda­ríkin þyrftu á Græn­landi að halda vegna „þjóðar­ör­yggis“.

DR sagði að í til­skipun hers­ins í síð­ustu viku hafi komið fram að her­menn á Græn­landi skyldu vera búnir skot­færum.

Þar var einnig lýst fjöl­fasa aðgerð sem fól í sér mögu­leik­ann á að senda við­bót­ar­liðsafla og búnað síðar, ef þörf krefði.

Bæði borg­ara­legar og hern­að­ar­legar flug­vélar hófu þá að flytja her­menn og búnað til Græn­lands, að sögn DR.

Her­flutn­ing­ur­inn var opin­ber­lega hluti af her­æf­ing­unni Arctic Endurance undir for­ystu Dana – sem danska stjórnin hefur sagt að muni halda áfram „stóran hluta næsta árs“.

Nokkrum dögum eftir að Trump til­kynnti að Banda­ríkin myndu ná Græn­landi „með einum eða öðrum hætti“ sendu átta Evr­ópu­ríki nokkra tugi her­manna til Græn­lands, opin­ber­lega til að und­ir­búa æfing­una. Þar á meðal sendi íslenska land­helg­is­gæslan tvo menn.

Sumir hafa síðan farið, þar á meðal um 15 manna hópur Þjóð­verja og nokkrir Svíar, á meðan aðrir halda áfram að koma.

DR greindi einnig frá víð­tækum póli­tískum stuðn­ingi, bæði frá dönsku rík­is­stjórn­inni og stjórn­ar­and­stöð­unni, við að veita við­nám ef til árásar Banda­ríkj­anna kæmi.

Troels Lund Poulsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur, neit­aði að tjá sig um frétt­ina þegar hann ræddi við frétta­menn í dag.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár